Brottför frá San José

Var að uppgötva að ég gat komist á netið þráðlaust hérna á hótelinu og því get ég núna notað íslenska stafi.
Vöknuðum kl. 5:30 að vanda og fengum okkur morgunmatinn kl. 7:00. Morgunmaturinn hérna eru aðallega steikt hrísgrjón með svörtum baunum og steiktum banönum (plantains) ásamt ommelettu. Með þessu er drukkinn safi úr kreistum ávöxtum af ýmsum toga og gott, sterkt kaffi.
Í gærkvöldi var ég að spjalla við Breta sem tjáði mér að hann þekkti nokkra Íslendinga sem vinna hjá CCP en hann er sjálfur dýrafræðingur sem núna vinnur við að forrita tölvuleiki fyrir eitthvert stórt, bandarískt-breskt fyrirtæki í London. Það er svo eftirsótt að vinna hjá þessu fyrirtæki að fólk byrjar á því að vinna kauplaust í 6 mánuði (Internship) til þess að eiga möguleika á ráðningu! Geri þó ráð fyrir að slíkt fólk sé ekki með B.S. í rafmagns- og tölvunarverkfræði og síðan M.S. í upplýsingatækni frá ITU (hmmm, Páll Ragnar)!
Eftir tæpa tvo tíma förum við af stað í langferðabíl til Monteverde sem er u.þ.b. 4 tíma ferð. Okkur er sagt að það sé ansi kalt í regnskógunum um þessar mundir og eins gott að vera vel klæddur!
Myndin sem fylgir er úr hverfinu okkar.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home