Friday, March 03, 2006

Föstudagur

Í kringum 1950 var þetta svæði hér, Monteverde og nágrenni, nánast mannlaust. Vitað er til að hér hafi búið 3 fjölskyldur hérna þá. Árið 1951 fluttust hingað 44 kvekarar frá Alabama í Bandaríkjunum, vegna þess að í Costa Rica var herinn afnuminn árið 1948 og kvekarar eru friðarsinnar, algjörlega á móti hernaði. Þeir keyptu hér 1200 hektara lands, stofnuðu kúabú og hófu ostaframleiðslu. Fljótlega eftir þetta opnaðist mikill markaður í Bandaríkjunum fyrir nautakjöt. Tíkóarnir (Costa Rica búar kalla sig “Ticos”) hófu þá nautakjötsframleiðslu í stórum stíl og tóku að fella skógana til að bæta við beitilandi. Skógarnir hurfu mjög hratt og fljótlega sáu kvekararnir að í óefni stefndi. Þeir leituðu því hófanna erlendis eftir aðstoð við að stofna sjóð til að kaupa meira land hér í Monteverde. Það gekk eftir árið 1962 og í stuttu máli sagt er friðlandið núna orðið 55 þúsund hektarar (550 km2). Af því eru 10% opið almenningi. Þangað fórum við á fimmtudaginn og fengum frábæra leiðsögn um svæðið í 2,5 klst. Veðrið var óvenjulega gott, sólskin og fremur hlýtt, en þarna er oftast þoka og mjög rakt. Fyrir utan hvað það var gaman að skoða skóginn, allar þessar þúsundir plantna og allmargar tegundir orkidea sem voru í blóma (þarna eru reyndar 480 tegundir af orkideum en við sáum aðeins fáeinar tegundir í blóma), sáum við 10-15 tegundir kólibrífugla. Við sáum líka frægasta og einna sjaldgæfasta fuglinn þarna, quetzel, sem finnst aðeins á svæðinu frá suðurhluta Mexíkó til Panama og er þjóðarfugla í Guatemala. Talið er að þarna á svæðinu séu aðeins um 200 fuglar af þessari tegund. Loks sáum við einn öskurapa og coati, sem er spendýr heldur minna en tófa. Sáum heila fjölskyldu af þeim, 6-7 einstaklinga, fara yfir stíginn rétt hjá okkur.

Um fjórðungur Costa Rica er nú skógi vaxinn en af þessu skóglendi eru aðeins um 15% upprunalegir skógar. Menn hafa reiknað út að það muni taka allt að 1000 ár áður en þessir skógar verða á aftur samsettir úr svipuðu hlutfalli tegunda og upprunalegu skógarnir, því að í “nýju” skógunum eru aðallega tegundir sem eru fljótar að nýta sér opið land, n.k. landnámstré.

Hérna á skólanum er skemmtileg blanda fólks. Ég er búinn að segja frá hommanum Joe frá San Diego og hjónunum frá Washington fylki. Því miður eru þau öll að fara héðan um helgina. Vonandi fáum við aftur jafngóða granna. Í dag vorum við að spjalla við vínbónda frá Kaliforníu sem er hér ásamt 14 ára syni sínum. Vínbóndinn er reyndar Englendingur upprunalega, úr Miðlöndunum, en fluttist vestur um haf á þrítugsaldri. Hérna er líka tvítug stúlka frá San Diego sem giftist í júní í fyrra hermanni sem nú er í Írak í þriðja sinn. Bróðir hennar er þar líka. Eiginmaðurinn (myndarlegur maður, við erum búin að sjá tvær myndir af honum) kemur heim í lok mars og hefur samið um að vera ekki sendur aftur til útlanda næstu 3 árin. Þau ætla að byrja á því að eignast barn (sumir Bandaríkjamenn eru svo opnir að þeir segja manni allt). Eiginmaðurinn er af norrænu og þýsku bergi brotinn og er frá Minnesota en sjálf er hún hálfkúbersk og hún er að læra spænsku vegna þess að hana langar einhvern tíma til að heimsækja ættingja sína á Kúbu. Henni finnast fjölmiðlarnir flytja mjög skakka mynd af ástandinu í Írak og forsetanum sínum. Allir eru afskaplega elskulegir við hana þótt fæstir séu henni sammála. Hér er líka strákur frá Texas sem var að ljúka háskólanámi en ætlar að ganga í herinn í 4 ár og fara svo annað hvort í fasteignabransann eða olíubransann. Ég geri ráð fyrir að hann sé ánægður með forsetann sinn og fyrrverandi ríkisstjóra þótt það hafi ekki komið til tals.

Reyni að láta eina eða tvær myndi fylgja með en það tekur svo langan tíma að flytja þær yfir á netið (hér er flutningsgetan ekki mjög mikil) að ég veit ekki hvað þær verða margar.

Á morgun, laugardag, förum við í helgarferð til eldfjallsins Arunal sem hefur gosið samfellt í nokkra áratugi og gistum þar í grenndinni. Við erum að vona að ekki verði mjög skýjað svo að við sjáum fjallið en það er víst fremur sjaldgæft! Vegna þessarar ferðar er ekki líklegt að neitt bætist við bloggið fyrr en eftir helgina.

Ég ætlaði að setja inn myndir af skólanum og úr skóginum en gafst upp á því í bili. Þarf líklega að minnka þær áður. Reyni aftur seinna.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home