Monday, March 06, 2006

Á Monteverde svæðinu búa um það bil 8000 manns. Hér er þó ekkert slökkvilið. Næsta slökkvilið er í 2 klst fjarlægð. Hér geta menn því ekkert gert nema horft á ef kviknar í. Hér er heilsugæslustöð en þar er aðeins einn læknir – eða læknakandidat, réttara sagt. Ég er hræddur um að menn sættu sig tæplega við þetta á Íslandi.

Fólkið hérna er sérlega elskulegt og hér er ekkert sem heitir “maňana”, þ.e. hér stendur allt eins og stafur á bók. Eigi leigubíll eða langferðabíll að leggja af stað kl. 6 þá leggur hann af stað kl. 6. Hér tekur fólk líka daginn snemma. Flestir vakna kl. 5-6 á morgnana, þegar sólin rís. Sólin sest milli 5 og 6 á kvöldin og fólk fer að sofa milli kl. 9 og 10 á kvöldin. Þeir nemendur sem búa hjá fjölskyldum eru yfirleitt mjög ánægðir en helst er kvartað yfir því að fólkið horfi mikið á sjónvarp á kvöldin og tali ekki mjög mikið við nemendurna. Við fréttum reyndar af einum nemanda sem var rekinn af heimilinu vegna þess að hann var svo ánægður með matmóður sína að hann sagði í tíma og ótíma “me gusta mi Mama Tica”. “Me gusta” þýðir að þykja eitthvað gott eða líka vel við það þegar talað er um hluti eða mat. En þegar talað er um fólk þýðir það að vera ástfanginn. Hann var því alltaf að klifa á því óvart að hann væri ástfanginn af hinni kostarísku “móður” sinni (mi Mama Tica). Þar kom að “Papa Tico” var nóg boðið og heimtaði að hann yrði fluttur annað.

Um helgina fórum við til Arunal sem er eldfjall sem er búið að gjósa daglega í 30 ár. Þetta er 4 klst bílferð eftir hræðilega holóttum vegum. Lögðum af stað kl. 7:30 á laugardagsmorgni og komum til baka rétt fyrir kl. 18 á sunnudagskvöldi. Alls fóru 6 nemendur héðan, auk bílstjórans og leiðsögumanns sem bættist við á staðnum. Þá bættust 4 nemendur við á staðnum en þeir komu frá Flamenco þar sem þeir eru í spænskunámi hjá sama fyrirtæki. Fórum í skemmtilegan göngutúr í frumskóginum og sáum tvær tegundir af toucan (mjög skrautlegir fuglar með gríðarstóran gogg), hey

0 Comments:

Post a Comment

<< Home