Monday, March 06, 2006

Arunal, krossgötur o.fl.

Ég er svo mikill klaufi í þessu bloggi að ég tapaði hluta póstsins sem ég setti inn áðan, en hér kemur hann:

Um helgina fórum við til Arunal sem er eldfjall sem er búið að gjósa daglega í 30 ár. Þetta er 4 klst bílferð eftir hræðilega holóttum vegum. Lögðum af stað kl. 7:30 á laugardagsmorgni og komum til baka rétt fyrir kl. 18 á sunnudagskvöldi. Alls fóru 6 nemendur héðan, auk bílstjórans og leiðsögumanns sem bættist við á staðnum. Þá bættust 4 nemendur við á staðnum en þeir komu frá Flamenco þar sem þeir eru í spænskunámi hjá sama fyrirtæki. Fórum í skemmtilegan göngutúr í frumskóginum og sáum tvær tegundir af toucan (mjög skrautlegir fuglar með gríðarstóran gogg), heyrðum í öskurapa og sáum Geoffroys spider monkey (Ateles geoffroyi). Man ekki hvað hann heitir á íslensku. Svo sáum við auðvitað coati sem eru alengir alls staðar. Eftir gönguferðina fórum við í spa þar sem heita vatnið rennur eins og stórfljót í gegnum staðinn og fólk getur valið hversu heitt það vill hafa vatnið. Síðan borðuðum við þar áður en keyrt var út í myrkrið á stað þar sem var möguleiki á að sjá hraun renna fram í myrkrinu og skýjunum. Fjallstoppurinn var hulinn skýjum eins og hann er reyndar 360 daga á ári. Fyrr um daginn höfðum við heyrt og séð grjóthrunið í fjallshlíðinni þar sem hraunið hrynur niður en er orðið svo kalt að það er bara grátt að degi til. Við sáum glóa í hraunið í myrkrinu í smástund en síðan var allt kyrrt. Eftir það var haldið var á hótelið.

Á sunnudeginum fórum við að miklum fossi í frumskóginum þar sem við syntum í hyl undir honum. Til að komast þangað urðum við að feta okkur niður með klettavegg, um 150 metra niður (og upp á eftir!). Sem betur fer var keðja meðfram öllum stígnum til að halda sér í. Eftir það var farið heim í sturtu, svo út að borða í hádeginu og loks var haldið heim á leið. Þá fórum við hluta leiðarinnar á báti eftir Arenal vatni sem er reyndar gríðarstórt uppistöðulón. Vatnsborð þessa lóns sveiflast samt ekki mikið vegna þess að úrkoma er fremur svipuð allan ársins hring. Þarna á vatnsbotni er þorp en allt fólkið sem þar bjó var flutt í nýtt þorp sem var byggt fyrir það.

Það var dálítið athyglisvert hversu margt fólk sem er að læra í þessum skólum eru á krossgötum í lífinu. Þarna var t.d. Hollendingur sem er orðinn forríkur á því að kaupa of selja fyrirtæki. Hann er að verða fertugur og er sestur í helgan stein, þótt hann kjósi fremur að kalla það að hann sé í leyfi frá vinnu í eitt ár. Þegar “leyfinu” lýkur ætlar hann að vinna tvo daga í viku við að hjálpa vini sínum sem rekur flughermaframleiðslu en þrjá daga vikunnar ætlar hann að vinna fyrir góðgerðarstarfsemi og stunda útreiðar. Þarna er líka kona frá Hollandi sem er búin að vera vinna við ráðgjöf fyrir stórfyrirtæki og sagði upp vegna þess hve stressandi vinnan er og er ekki búin að finna sér aðra vinnu. Maður hefur á tilfinningunni að hún hafi verið búin að leggja töluvert fyrir. Svo var það hann vinur okkar frá San Diego (sem nú er farinn héðan) en hann sagði upp og seldi allar sínar eigur og veit ekki hvenær hann fer aftur að vinna. Þá er það kanadísk stúlka sem var ráðin pólitískt af ráðherra í ríkisstjórninni en þegar flokkurinn tapaði kosningunum var henni og öllum öðrum starfsmönnum sagt upp. Hún fékk einhverja eingreiðslu sem hún er að nota núna, en hún er reyndar búin að fá annað starf sem bíður hennar heima í Ottawa. Þá er hér þýsk kona á okkar aldri, fuglaskoðari mikill, sem er í ársleyfi frá kennslu og er á hálfsárs ferðalagi um heiminn til að endurskoða líf sitt og 27 ára hjónaband. Um helgina hittum við líka konu frá Minnesota, jafnöldru mína, sem er í leyfi frá kennslu. Við heyrðum hana semja við leiðsögumanninn okkar unga og bráðmyndarlega, sem var með okkur við Arunal um helgina, um að hann yrði einkaleiðsögumaður hennar um Costa Rica í viku þegar dvöl hennar við skólann í Flamenco lyki eftir 1-2 vikur. Skemmtilegt starf, leiðsögumannsstarfið!

Vona að mér takist að láta einhverjar myndir fljóta með í þetta sinn en þá verðið þið bara að giska á hvað er hvað.

1 Comments:

Blogger Palli said...

Hæ, hljómar eins og geðveikt skemmtileg ferð! Allt gott að frétta af mér.
Ég og Hersteinn viljum fleiri dýramyndir (helst pöddumyndir :)

5:07 AM  

Post a Comment

<< Home