Stutt stopp í San Jose









Komin til San José eftir 7 klukkustunda ferðalag frá Manuel Antonio. Leiðsögumaðurinn okkar í þessari ferð, Angelo, var sá sami og í ferðinni til eldfjallsins Arunal fyrir viku. Þetta er skemmtilegur strákur og leynir á sér. Hann er 24 ára með gráðu í ferðamannafræði og er núna í MBA námi. Hann er verktaki, er með sitt eins manns fyrirtæki, og eitt af því sem hann gerir er að taka á móti kvenfólki frá Bandaríkjunum sem kemur hingað í fegrunaraðgerðir. Það eru reyndar hæg heimatökin hjá honum því þrír fjölskyldumeðlimir eru læknar. Hér er reyndar mjög góð heilsugæsla eins og sést á því að meðallífslíkur eru með því hæsta sem gerist í heiminum, rúmlega 81 ár hjá konum og rúmlega 76 ár hjá körlum. Ekki skrýtið að Bandaríkjamenn flykkist hingað til að eyða elliárunum hérna.
Hér fylgja nokkrar myndir. Þarna er m.a. mynd af Angelo, leiðsögumanninum okkar, þar sem hann snýr sér við í framsætinu. Þarna er líka mynd af Söndru, sem var kennarinn okkar seinni vikuna í Monteverde. Hún er óvenjuleg kona með merkilega sögu að baki. Hún er í þjóðbúningnum sínum á myndinni en á föstudaginn var skemmtidagskrá þar sem kennarar komju í þjóðbúiningum í skólann. Þarna er mynd af krókódílum sem urðu á vegi okkar á leiðinni til Manuel Antonio. Myndin er tekin ofan af brú og stærstu krókódílarnir á myndinni eru rúmir tveir metrar á lengd. Sáum einn stærri í ánni sem var um þrír metrar á lengd. Þarna er mynd af "white-faced Chaputin" apa, "stick insect" og þeir sem eru næmir fyrir skordýrum munu sjá að út úr fókus í bakgrunni er drekafluga sem síðan er í fókus á annarri mynd.
Þarna eru líka myndir af tveim tegundum af iguanaeðlum. Sú stærri var ca 70 cm á lengd, hin um 20 cm.
Læt þetta nægja í bili. Vonast til að geta bloggað frá Cahuita, en við leggjum af stað frá hótelinu kl. 7 í fyrramálið.

1 Comments:
Flottar myndir. Loksins eitthvað sem ég hef áhuga á :D
Post a Comment
<< Home