Wednesday, April 02, 2008

Miðvikudagurinn 2. apríl

Fórum í morgun til Camargue sem er hér rétt við bæjardyrnar á Arles. Ann og Scott komu með okkur á bílnum sem er lítill Seat, knallrauður dísilbíll. Einu sinni var spænskt Seat útibú frá Fiat en nú skilst mér að Volkswagen eigi þá.

Veðrið var eins og best verður á kosið, sólskin og 19°C en dálítið rok. Byrjuðum á því að aka alveg niður að sjó og ganga þar eftir manngerðum margra alda varnarvirkjum, sem hlaðið hefur verið upp til að stjórna bæði Rón og sjónum þegar er áhlaðandi. Þetta var alveg opið svæði, miklar leirur. Þar var mikið um flæmingja, þ.e. flamingóa. Virtust vera tvær tegundir, önnur stór og bleik en hin hvít og minni. Einnig var þarna mikið af nokkrum tegundum vaðfugla. Fundum rauðrefsgreni í hleðslunni. Ókum svo aðeins til baka þar sem við fórum í annan göngutúr. Þar sáum við nagdýrið coypu í návígi. Er það ekki nútría á íslensku? Þær voru svo draugspakar að tekur engu tali. Hægt að ljósmynda þær úr tveggja metra fjarlægð þar sem þær hámuðu í sig lauka af villtum írisum. Mjög mikið fuglalíf þarna líka, íbísar, hegrar, avocet, stokkendur o.fl. Þarna voru líka froskar, eðlur og vitaskuld skordýr. Sá eina moskítóflugu en veit ekki til þess að ég hafi verið bitinn. Kannski kemur það í ljós í nótt!

Eftir þetta ókum við eftir mjóum sveitaveg áleiðis aftur til Arles. Á leiðinni tók sparrhaukur ástfóstri við okkur og flaug ofan í skurðinum meðfram veginum rétt á undan bílnum (við ókum hægt). Þegar honum fannst hann kominn of langt á undan settist hann en þegar við nálguðumst flaug hann áfram. Einu sinni hvarf hann inn á akur og við héldum að við sæjum hann ekki aftur en stuttu síðar kemur hann þjótandi aftan að okkur, fór fram með bílnum og hélt uppteknum hætti. Að lokum gafst hann þó upp.

Þarna var mikið um hvíta hesta sem eru alveg villtir og hafa verið það í aldaraðir. Mjög fallegir. Þessir hestar virðast ekki fæðast dökkir og lýsast síðan eins og okkar gráu hestar, heldur fæðast þeir hvítir.

Við erum sem sé komin aftur í bæinn og ætlum út að borða í kvöld, það verður afmæliskvöldverðurinn svo að vonandi verðum við heppin með stað!

Hafið það gott á Fróni!
PH

0 Comments:

Post a Comment

<< Home