Wednesday, April 02, 2008

Suður-Frakkland

Illa hefur gengið að komast inn á bloggið til að skrifa en loksins tókst mér að búa til nýtt lykilorð til að fá aðgang.

Ferðin hefur gengið vel. Lentum í Barcelona kl 22:30 á mánudagskvöld. Vorum komin á hótelið rétt fyrir kl hálfeitt um nóttina en við sváfum ekki vel. Loftkælingin var erfið og rúmdýnan var hörð. Fengum því ekki mikinn svefn.

Tókum svo leigubíl út á flugvöll til að sækja bílaleigubíl og vorum lögð af stað kl 10:15 um morguninn. Vorum svo komin kl 15:30 til Arles eftir að hafa stoppað einu sinni á leiðinni. Tókst svo að finna hótelið eftir að hafa farið á Tourist Information og reyndist það vera í gamla bænum. Bílinn þurfti ég hins vegar að geyma í bílageymslu niðri í bæ. Tæplega 10 mínútna gangur.

Ann og Scott voru komin á staðinn. Fagnaðarfundir. Fórum út að borða eftir stuttan göngutúr um gamla bæinn. Nú er miðvikudagsmorgun og frúin á afmæli - stórafmæli. Erum að undirbúa ferð suður í Camargue þar sem er friðað fenjasvæði með miklu fuglalífi. Gerum ráð fyrir að vera það mestallan daginn.

Sól og blíða úti - eins gott að hafa nóg vatn með.

Hafið það gott!

PH

0 Comments:

Post a Comment

<< Home