Nýtt hótel

Þá erum við búin að flytja okkur um set og komin á nýtt hótel. Það er nær flugvellinum og héðan er ókeypis skutluþjónusta á 10 mínútna fresti á flugvöllinn sem er ágætt því að við þurfum að vera komin á völlinn kl. 7 á fimmtudagsmorgni. Hér er líka internettenging á herberginu og ég er einmitt að prófa hana. Á hótelinu er líka kasínó en ég geri ekki ráð fyrir að Ásta hleypi mér í rúllettuna.
Við fórum niður í San José í morgun til að fara á skrifstofuna fyrir SOS þorpin í Costa Rica. Fyrst í flugvallarskutlunni, síðan í strætó niður í bæ og loks í leigubíl - heilmikið ferðalag. Í ljós kom að við getum ekki hitt Vanessu á morgun vegna anna hennar í skólanum en við getum hitt hana í dag kl. 16:00 og munum gera það. Fórum því aftur á hótelið til að finna til gjafir sem við ætlum að færa henni og "mömmu" hennar og þurfum líklega að leggja af stað héðan upp úr 14:30 til að komast á leiðarenda í tæka tíð. Aumingja Vanessa kvíðir örugglega mikið fyrir að hitta þetta útlenda fólk en við kvíðum reyndar fyrir líka.
Við vorum að uppgötva að við verðum lent í London kl. 12 á hádegi á föstudaginn og þurfum að bíða í meira en 8 klst á Heathrow. Hvorugt okkar man eftir þessari löngu bið þegar við vorum að gera áætlunina. Ætlum að athuga á netinu í kvöld hvort hægt verður að breyta áætluninni London-Keflavík en finnst það ólíklegt, svona á föstudegi. Sennilega hefur allt verið upppantað með eftirmiddagsfluginu þegar við gengum frá áætluninni. En þetta kemur allt í ljós.
Efst er mynd af blómi á runna sem mikið er notaður sem limgerði í Cahuita.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home