Monday, April 14, 2008

Komin til Barcelona

Í gær var rólegur dagur hjá okkur í Tossa, ljómandi gott veður og óttalegt letilíf.

Í morgun fórum við frá Tossa áleiðis til Barcelona. Töfðumst reyndar um tæpan klukkutíma því að við komum bílnum ekki inn í götuna þar sem hótelið er vegna þess að bæjarstarfsmenn voru að dæla upp úr skolpleiðslum undir götunni með stórum dælubíl. Sáum þá gera þetta líka fyrir tveim dögum. Frárennsliskerfið virðist ekki duga hjá þeim. Lyktin var ekki góð og hvernig fara þeir að í sumar þegar öll hótel fyllast og hitinn verður öllu hærri?

Komumst loksins af stað upp úr kl. 11 og ókum sem leið lá til Barcelona. Þrátt fyrir ótta við annað römbuðum við nánast beint á Römbluna og þaðan á hótelið sem er inni í arabíska hverfinu. Eftir að hafa tékkað inn í hótelið og komið öllum farangri upp á herbergi, ókum við út á flugvöll og skiluðum af okkur bílnum. Allt gekk það með mestu ágætum. Tókum svo strætó aftur í bæinn, fengum okkur tapas á torgi rétt við Römbluna og svo á hótelið aftur, m.a. til að skrifa þetta blogg. Veður er ósköp þægilegt í dag, hálfskýjað og hiti sennilega í kringum 18°C.

Sáum veðurspá áðan í sjónvarpinu og spáð er mjög góðu veðri á morgun, síðan skúrum á miðvikudag og heldur meiri rigningu á fimmtudag og föstudag. En það er bara nokkuð sem má búast við á þessum árstíma.

Meira seinna.

Lifið heil!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home