Monday, April 07, 2008

Síðasti dagurinn í Molló

Í gærkvöldi lagðist þoka yfir bæinn og svo er enn í dag. Þó komst sólin einstaka sinnum í gegn og við fengum okkur ágætan göngutúr hér upp fyrir bæinn í morgun. Eftir hádegisverð fengum við okkur annan göngutúr og þá var gott að hafa flíspeysurnar með!

Á morgun höldum við héðan og þá verður stefnan tekin niður á strönd. Þó ekki á baðstrendurnar heldur líklega í þorpið Cadaquea eða nálæg þorp sem eru á skaga rétt sunnan landamæranna við Frakkland en á því svæði eru allstór náttúruverndarsvæði. Næstu skrif verða væntanlega þaðan.

Lifið heil!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home