



Hér eru nokkrar myndir og eins og venjulega veit ég ekki í hvaða röð myndirnar birtast. Ein myndin sýnir þorpið Gordes með knallrauða Seatinn í forgrunni. Önnur sýnir hótelherbergið okkar í Gordes þar sem Ásta situr og les á veröndinni og verst sólinni. Þá er mynd sem sýnir muninn á uppgerðu og óuppgerðu húsi hér í Molló í Pýreneafjöllunum og loks er mynd af hótelinu okkar hér í Molló. Við eigum neðri svalirnar hægra megin þar sem ég skrifaði bloggið áðan.
Lifið heil!
0 Comments:
Post a Comment
<< Home