Saturday, April 12, 2008

Tossa

Laugardagur, 12.apríl 2008

Vöknuðum við fyrsta hanagal að vanda í gærmorgun, föstudag. Reyndar sváfum við ekki vel því að þeir eru ekki búnir að setja loftkælingu í gang hér á hótelinu. Hitinn í herberginu var 25°C þegar við ætluðum að fara að sofa og það var einfaldlega of heitt. Við urðum því að hafa opið út á svalir sem var mjög þægilegt þegar leið á nóttina. Hins vegar vorum við alltaf að vakna vegna hávaða frá götunni. Ef það var ekki hundgá, þá var það ungt fólk að hrópa og skrækja. Einhvern tíma þegar nokkuð var liðið á fór götusópsbíll fram hjá. Hann fór ekki hratt yfir. Ekki löngu síðar kom sorpbíllinn. Loks fóru kaupmenn við götuna að renna upp álrennihurðunum fyrir dyrum og gluggum verslana sinna. Þá var orðið tímabært að koma sér á fætur.

Eftir morgunverð gengum við út að bílastæðinu þar sem rauði Seatinn okkar er geymdur. Er þá ekki bara skærgul þyrla komin á stæðið nánast við hliðina á bílnum! Úr fjarska virtust spaðarnir liggja ofan á þakinu á bílnum. Um það leyti sem við komum að stæðinu tekur þyrlan á loft. Einn maður varð eftir, sem virtist stjórna aðstæðum á vettvangi. Við spurðum hvað um væri að vera og skyldist okkur að þetta væru einhverjir íþróttasjónvarpsfréttamenn.

Við ókum sem leið lá til Girona og römbuðum á að leggja bílnum í bílastæðahúsi alveg við miðbæinn. Gamli miðbærinn í Girona er ekki stór en þar er áhugavert, gamalt gyðingahverfi. Þar er einnig safn um þetta og fleiri gyðingahverfi. Mest bjuggu 800 gyðingar í Girona á miðöldum svo að þetta var ekki stórt samfélag. Hins vegar voru gyðingahverfi í flestum borgum Katalóníu á miðöldum en hið stærsta, sem var í Barcelona, hýsti þó ekki nema um 2000 manns á sínum tíma. Gyðingar byrjuðu að streyma til annarra landa við Miðjarðarhafið á 1. og 2. öld e.Kr. þegar uppreisn þeirra gegn Rómverjum misheppnaðist og þeir lögðu Jerúsalem í rúst. Gögn um dvöl gyðinga á Spáni og víðar eru hins vegar takmörkuð fyrr en kemur fram á 11. og 12. öld en þá virðist þeim hafa fjölgað nokkuð vegna aðflutnings. Á þeim tíma virðist samkomulag þeirra og kristinna og múslima hafa verið nokkuð gott. Gyðingar kusu hins vegar að búa saman í hverfum þar sem þeir mynduðu sitt eigið samfélag, með sýnagógu o.s.frv. Ef ég man rétt, réðu múslimar á þeim tíma ekki yfir Katalóníu, síðan Karlamagnús stöðvaði framrás þeirra í Vestur-Evrópu. Þeir réðu hins vegar yfir megninu af öðrum héruðum Spánar þar til Ferdinand og Isabella hröktu þá á braut á 15. öld. Hvað með það, þá tóku kristnir að herða að gyðingum þegar kom fram á 13. og 14. öld og einangra þá í gettóum, banna þeim að búa annars staðar. Í Girona urðu þeir að múra upp í alla glugga og dyr sem sneru frá hverfinu og aðeins fáeinir inngangar voru þá inn í hverfið. Þegar gyðingar þurftu að fara út fyrir gettóin urðu þeir að festa sérstakt merki framan á sig, ekki Davíðsstjörnu, heldur var þetta hringlaga merki, hálft gult og hálft rautt. Þeim var einnig bannað að versla með flestar matvörur utan gyðingahverfisins og fleiri takmarkanir voru á atvinnufrelsi þeirra. Þarna bjuggu þeir nánast í einangrun öldum saman. Hins vegar fann ég engar upplýsingar um það hvenær þessu ástandi lauk. Ætli Frankó hafi ekki bara sent þá úr landi um miðja síðustu öld?

Meðan við vorum í Girona byrjaði að rigna. Það var svo sem greinilegt strax um morguninn að langþráð rigningin (hér er búinn að vera mesti þurrkur í 40 ár) kæmi þegar liði á daginn. Annars var þetta varla mikið meira en súld og við vorum eiginlega hissa á því að ekki skyldi rigna meira miðað við hve skýin voru svört um morguninn.

Þarna í Girona sáum við allt í einu kunnuglegan mann. Fyrst höfðum við séð hann maula nesti við hliðina á reiðhjólinu sínu í fjörunni í Cadaqués. Svo sáum við hann tvisvar hjólandi í bænum sama dag. Daginn eftir var hann á hjólinu sínu við hús Salvadors Dalí og loks í gær, enn á hjólinu, í Girona. Þetta er maður á fimmtugsaldri, alveg gráhærður, klæddur í stuttbuxur og skrámaður á öðru hné eftir að hafa dottið á hjólinu. Ég á alveg eins von á því að sjá hann hér í Tossa de Mar um helgina eða í Barcelona í næstu viku. Þið látið mig vita ef þíð sjáið hann!

Við ókum svo sem leið lá í áttina að Tossa eftir heimsóknina til Girona. Villtumst aðeins af leið; komum að sjónum nokkrum tugum kílómetra of norðarlega og ókum því með sjónum til baka. Hlykkjóttari leið meðfram klettóttri og vogskorinni ströndinni hef ég sjaldan eða aldrei ekið. Við vorum eiginlega bæði orðin hálfbílveik þegar við komum loksins á leiðarenda. Hins vegar er athyglisvert að á nokkrum stöðum á leiðinni er verið að byggja gríðarlega hótelkomplexa í allt að 100 metra hæð yfir sjó, fyrir ofan pínulitlar víkur með gulum sandi. Útsýnið er frábært þarna að ofan en þetta verður mikið príl fyrir hótelgesti sem vilja notfæra sér baðströndina.

Nú, kvöldið var rólegt. Hér í Tossa hafði verið þurrt þegar við komum til baka frá Girona en svo rigndi lítils háttar um kvöldið. Þar sem ég sit úti á svölum klukkan að verða 11 að morgni laugardags, horfi ég á bláan himin og sólin lýsir upp götuna og húsin handan hennar. Hingað á svalirnar nær sólin hins vegar ekki fyrr en síðdegis. Kannski ég geti þá prófað nýju sólgleraugun mín. Ég byrjaði að lesa Óvinafagnað eftir Einar Kárason í gærkvöldi og ætli gleraugun nýtist ekki vel við framhaldslestur seinna í dag.

Lifið heil!

1 Comments:

Blogger Sigmundur Korneliusson said...

Það er greinilega langt síðan þið hafið búið á háskóla-garði. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að það ætti að setja hljóðkúta á 18 ára stelpur, þar sem þegar þær hafa hellt áfengi ofan í sig virðast öll hljóð frá þeim vera við sársaukamörk.
Þið hafið ekki svifið á hjólreiðamanninn og kvart yfir því að hann sé að elta ykkur?!?!?!?
Vonandi hafið þið það bara gott.

8:56 AM  

Post a Comment

<< Home