Friday, April 11, 2008

Tossa del Mar

Fimmtudagur 10. apríl 2008

Tókum þá ákvörðun í gærkvöldi að fara frá Cuadaqués í dag. Fyrst ætluðum við að fara til Girona, sem er með gamlan og skemmtilegan miðbæ og leifar eftir dvöl Rómverja fyrir margt löngu. Við eyddum töluverðum tíma á Netinu en fljótlega kom í ljós að öll hótel sem voru í eða nálægt miðbænum og voru innan þeirra kostnaðarmarka sem við gátum sætt okkur við, voru ekki með bílastæði. Þá ákváðum við að fara frekar niður á Costa Brava og fara þaðan í dagsferð til Girona. Pöntuðum okkur hótel í Tossa del Mar, skammt frá bænum þar sem Ásta og Helga Hjálmtýs dvöldu í vikutíma á sokkabandsárum sínum.

Vöknuðum í sólskini í morgun, hvergi ský að sjá, sem kom á óvart því að okkur hafði skilist á veðurspánni í imbanum að í dag ætti að rigna. Vorum lögð af stað upp úr kl. 10 að vanda og komin hingað til Tossa del Mar um hádegisbilið. Hitamælirinn í bílnum sýndi að útihitinn var 24–25°C á leiðinni en þegar við komum niður á strönd datt hann niður í 19°C. Við sáum fleira á leiðinni. Meðfram þjóðvegi N11 sáum við í fyrsta skipti þjóðvegavændiskonur. Þær ýmist standa eða sitja í klappstólum við útskot meðfram veginum. Báðum megin vegar eru bara akrar og limgerði. Einhver keyrir þær á þessa staði á morgnana og sækir þær væntanlega á kvöldin. Mér skilst á Ástu að þetta sé svona 9 til 5 vinna sem fæstar konur óski sér. Ég verð bara að taka hana trúanlega að þessu leyti (eins og auðvitað að öllu öðru leyti).

Fundum hótelið án vandkvæða og ákváðum að vera hér í 4 nætur en förum svo til Barcelona. Eini ókosturinn við hótelið er sá að Internet tengingin er í ólagi og óljóst hvenær það verður komið í lag. Hér eru þó einhver netkaffi í grenndinni þannig að við reynum kannski að koma þessum pistli í loftið við tækifæri. Bílinn þurfum við að geyma á afgirtu bílastæði í 800 metra fjarlægð en það er sko hið besta mál.

Þegar við skoðuðum verðlistann á hótelinu kom nokkuð athyglisvert í ljós: Verðið í júlí og ágúst er 75% hærra en núna! Miðað við það, veðrið og þá staðreynd að ég hef aðeins séð eina moskítóflugu (sem stakk mig ekki) í allri ferðinni, erum við fegin að vera á ferðinni núna en ekki að sumarlagi.

Fengum okkur göngutúr um Tossa del Mar eftir að við vorum búin að koma okkur fyrir. Fengum okkur sitt hvorn saladréttinn með geitaosti. Frábær matur. Töluðum vitaskuld spænsku við þjónustustúlkuna en hún svaraði alltaf á ensku án þess að blikka auga. Skyldi hún hafa heyrt á hreimnum að við erum útlendingar?

Að aflokinni dálítilli síestu eftir matinn skruppum við í bæinn (miðbærinn er allur innan 300 metra frá hótelinu). Stóðst ekki mátið að kaupa mér leðurbelti þegar ég sá að þau kostuðu þriðjung af því sem þau kosta heima. Ég keypti mér líka sólgleraugu. Almennt talað finnst mér ekki betra að nota sólgleraugu, hvorki við akstur né annað. En þegar ég reyndi að lesa úti á svölum áðan reyndist það nærfellt ómögulegt í sólinni án sólgleraugna. Ég vildi því fá mér sólgleraugu sem ég gæti notað yfir lesgleraugun. Það gekk þó ekki þrautalaust því að Ástu fannst ég svo asnalegur með öll þau gleraugu sem ég fann. Að lokum fann ég svo ódýr gleraugu sem uppfyllti ofangreint skilyrði, að Ásta sætti sig við þau, svo framarlega sem ég léti aldrei nokkurn annan en hana sjá mig með þau. Það stóðst auðvitað á endum að þegar við komum aftur á hótelið var sólin horfin af svölunum!

Fengum okkur ágætis spænskan mat í kvöld og leituðum að Internetkaffi en fundum ekki. Gátum því ekki sent þetta inn á bloggsíðuna í kvöld. Reynum að gera það á morgun, föstudag.

Lifið heil!

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

skora á þig að mæta með sólgleraugun þegar þú kemur heim og leika blindan mann ..heheh
- gott fyrir þig að sleppa við refa-fárið hér heima, vona allavega að það sé ekki verið að hringja og bögga þig ..
- höfum krufið eitthvað um 20 tófur í dag og 9 til viðbótar eru að þiðna niðri meðan Dáni og Bogga eru í tíma

bestu kveðjur héðan
Ester - með breitt bak

7:27 AM  
Anonymous Anonymous said...

Gangi ykkur vel!

Hafdi ekki hugmynd um ad thetta vaeru svona margar tófur! Voru til nógu morg eydublod og sudupokar?

PH

10:46 AM  
Anonymous Anonymous said...

alltígúddí - við bara redduðum því

Ester

4:28 AM  

Post a Comment

<< Home