Við ströndina
Þriðjudagur 8. april 2008
Í gær steyptist þokan yfir okkur og var orðin mjög þétt um kvöldið. Spáin var sérkennileg. Það virtist eiga að rigna um allan Spán í dag nema hér á norðausturhorninu. Þegar við fórum á fætur í morgun var veðrið hreint frábært, að vísu ekki sól en háskýjað og fremur hlýtt. Að vanda vorum við lögð af stað með allt okkar hafurtask í knallrauða Seatinum upp ú rkl 10 og var stefnan tekin niður á strönd. Ókum fram hjá Figueras og síðan Roses, sem er bær við ströndina. Þar eru miklar “marinas” þar sem eru skemmtibátar, bæði hraðbátar og skútur, af öllum stærðum og gerðum. Við vorum búin að sjá á Netinu að þar væri ansi dýrt að gista. Ókum því áfram yfir fjallgarð sem er friðland og niður að Cadequés (man ekki nákvæmlega hvernig það er stafað) og fundum okkur hótel hér. Þaðer fremur ódýrt á þessum árstíma en við erum með litlar svalir þar sem er útsýni yfir voginn þar sem bærinn stendur. Þegar þetta er ritað erum við búin að fara í tveggja tíma göngutúr yfir í hinn enda bæjarins og til baka. Salvador Dali málaði mikið hér og bjó síðustu áratugina rétt hinum megin við bæinn. Þeir eru með eftirprentanir af verkum hans meðfram ströndinni svo að hægt er að sjá mótífin um leið og maður skoðar myndirnar. Að vísu á það aðeins við um verk sem voru máluð fyrir ca 1922 því að smám saman urðu verkin brjálaðri og hann hætti að mála landslag.
Við fengum okkur ekta spænsk (eða katalónsk) tapas i hádegisverð á litlum veitingastað. Við hliðina á okkur sátu þýsk hjón, liklega heldur eldri en við. Hann fékk sér kók og pizza, hún límonaði og ommelettu. Engin áhætta tekin þar! Rosalega missir fólk af miklu ef það vill ekki borða dæmigerðan mat þeirra staða sem það heimsækir.
Myndin hér fyrir ofan sýnir útsýnið af svölunum. Nú er klukkan að verða 4 síðdegis og sólin er að ná inn á svalirnar. Hins vegar verður að segjast eins og er að það er dálítð rok hér núna og varla sitjandi úti nema í peysu. Læt því staðar numið í bili.
Lifið heil!

2 Comments:
sorrý hvað ég er lengi að fatta - datt semsé fyrst núna í hug að það væri hægt að fylgjast með á blogginu.. en þetta er afar spennandi samt :-)
bestu kveðjur úr gluggaveðrinu á Fróni
Ester (sem er að lesa á fullu og bæta inn einni og einni línu í tvö handrit sem eru opin samtímis)..
Sæl Ester!
Var farinn að hafa áhyggjur af því að ég hefði gleymt að segja þér að ég væri að fara í burtu!!! Þú mátt búast við að Dáni hafi samband fljótlega um krufningar.
Gangi þér vel!
PH
Post a Comment
<< Home