Síðasta kvöldið í Costa Rica
Þá er síðasti dagurinn í Costa Rica að kvöldi kominn. Það er alveg ljóst að við eigum eftir að koma hingað aftur, þó ekki v erði nema til að hitta Vanessu aftur, en svo er líka ýmislegt sem við eigum eftir að skoða hérlendis.
Mig langar til að þakka góðar kveðjur í dag! Inga mín, þakka þér fyrir að hrinda þessari kveðjuhrinu af stað (ég á eftir að skamma þig þegar við hittumst á laugardaginn). Þetta er í fyrsta skipti sem ég fæ afmælissönginn á Netinu! Því miður virkaði hljóðið ekki. Þú verður að gera betur næst!!!
Dagurinn var afslappaður. Fórum niður í San José og skoðuðum Gullsafnið, sem fjallar í rauninni um sögu Kostaríku fyrir komu Spánverja hingað. Skemmtilegt safn og áhugaverð saga.
Komum aftur á hótelið seint í eftirmiddaginn, fórum í sturtu og svo notfærðum við okkur boðskort upp á ókeypis drykki (sem okkur tókst ekki að nota í gær, daginn sem við komum) áður en við fengum okkur göngutúr í góðu veðri að veitingastað sem hótelstarfsmaður hafði mælt með. Erum sem sé komin aftur upp á hótel og förum fljótlega að sofa enda þurfum við að vakna kl. 5:30 í fyrramálið.
Við uppgötvuðum í dag hvers vegna við pöntuðum ekki far með eftirmiddagsflugi frá London til Keflavíkur. Eftirmiddagsflugið fer kl. 13 frá Heathrow, aðeins rúmum klukkutíma eftir að við lendum þar og við töldum ekki réttlætanlegt að miða við aðeins klukkustundardvöl miðað við hve langt flugið er frá Los Angeles til London er. Munum því taka kvöldflugið til Íslands eins og að var stefnt. Vonandi náum við að sofa eitthvað á leiðinni Los Angeles - London.
Hittumst heil!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home