Friday, September 29, 2006

Dagur að kveðldi kominn

Þá er fyrsti dagurinn í Stokkhólmi nánast liðinn. Í morgun fékk ég mér göngutúr niður Drottningargötuna og skoðaði mig um. Fékk mér svo pylsu og tók neðanjarðarlestina upp í háskóla. Var kominn þangað um kl. 13. Hitti á Karin, nemanda Anders, sem hafði fyrirmæli um að útvega mér lykil og kort að byggingunni. Hún sýndi mér líka hvar er búið að finna skrifborð fyrir mig. Ég var hins vegar ekki með fartölvuna með mér svo að ekki var hægt að ganga frá internettengingu á staðnum. Hún hóaði svo saman nokkrum núverandi og fyrrverandi nemendum Anders og við drukkum saman kaffi og spjölluðum, aðallega um refi. Þarna ver Peter sem er reyndar að rannsaka samband nagdýra og ránfugla á tófuslóðum en tekur líka þátt í refarannsóknunum í hjáverkum. Efnilegur ungur maður. Hafði hitt hann tvisvar áður. Þarna var Bodil, sem kláraði doktorinn fyrir 2 árum og er aðallega í líkanagerð núna. Hef hitt hana margoft. Hún er búin að vera póstdokk í Englandi í tvö ár og er núna að byrja eins árs póstdokk í Uppsölum. Þarna var svo auðvitað Karin sjálf sem er heldur áfram þar sem Love hætti og er að skoða erfðafræði tófunnar hringinn í kringum pólinn út frá örtungla-DNA. Það verður fróðlegt að sjá hvernig niðurstaðan verður í samanburði við hvatbera-DNA vinnuna. Loks var þarna Veronika sem er reyndar að rannsaka mammúta frá Wrangle eyju en mun taka þátt í vinnunni með hauskupurnar sem ég kom með frá Íslandi. Ég hafði hitt bæði Karin og Veroniku áður. Love er staddur á landinu en hann er að taka formlega á móti doktorsgráðunni í kvöld og þurfti að æfa seremóníuna í dag. Spurning hvort við hittumst á morgun.

Um klukkan 3 ákvað ég að tefja þau ekki frekar og tók neðanjarðarlestina niður í bæ. Ég keypti mér vasakortabók af Stokkhólmi sem ég ætla að nota á morgun (og auðvitað líka síðar) til að rata um en meiningin er að fá sér langan göngutúr og skoða meðal annars hverfið sem ég flyt í á þriðjudaginn.

Ég var svo kominn heim á hótel um kl. 16:30 og er búinn að vera að vinna við úrvinnslu á gögnum fyrir eina af greinunum sem ég ætla að vinna við hérna. Hlakka til að ræða gögnin við Anders og fleiri. Nú er klukkan rúmlega 19 að kveldi og ég geri ráð fyrir að koma mér fljótlega af stað til að finna mér eitthvað í svanginn. Hételið er mjög vel staðsett, um 2 mínútna gang frá Drottninggatan þar sem er fjöldinn allur af litlum veitingastöðum og aðeins um 5 mínútna gang frá staðnum þar sem ég gist þegar ég var hér síðast, í desember 2005, en þá gisti ég í "Författarnas Hus".

Já, ég komst að því að til að komast inn á netið hérna á hótelherberginu þarf ég að kaupa mér aðgang að netinu í gegnum Telia fyrir litlar 150 sænskar krónur á sólarhring sem mér finnst algjört "daylight robbery". Nú skil ég hvers vegna mér gekk svo illa að nota netið áður, en þá hafði ég komist inn á eitthvert skugganet úr nágrenninu sem sennilega dugar mér oftast en ekki til að sækja massíf gögn á tölvu háskólans heima eins og ég var að reyna að gera. Sambandið var svo lélegt að það tókst ekki.

Því má bæta við að hér er algjört sumarveður, ca 20°C og sólskin en sem betur fer dálítil gola. Þetta er víst frekar óvenjulegt en mér skilst að veðrið sé búið að vera svona allan septembermánuð.

Lifið heil.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home