Thursday, September 28, 2006

Kominn til Stokkhólms

Allt gekk eins og í sögu á leiðinni. Mjög fáir farþegar, varla nema einn í hverri sex sæta röð. Hef þó sjaldan fengið jafnaumingjalega máltíð í íslenskri flugvél. Vélin snerti malbikið á mínútunni 21:15 eins og áætlunin gerði ráð fyrir. Engin bið var eftir farangrinum, engin töf í tollinum og ég var lagður af stað í "flygbussen" kl. 21:40, 25 mínútum eftir lendingu. Ég minnist þess ekki að hlutirnir hafi gengið svona hratt fyrir sig nema í innanlandsflugi á Íslandi. Var svo kominn á hótelið upp úr hálf ellefu.

Vegna þess hve aumingjaleg máltíðin var í flugvélinni ákvað ég að fá mér í svanginn og spurðist fyrir í móttökunni. Var svo heppinn að það var einn staður í nágrenninu sem er opinn til miðnættis en allir hinir loka kl. 22, að minnsta kosti á virkum dögum. Fékk elgskjötbollur með frönskum kartöflum!

Fór aftur á hótelið og horfði á Frasier áður en ég fór að sofa.

Ég hefði ekki þurft að hafa áhyggjur af því að sofa yfir mig! Vaknaði kl. 6:30 við hróp frá byggingaverkamönnum, glamri í járnadrasli og vélahljóði. Við nánari athugun kom í ljós að ca 8 metra frá glugganum mínum, hinum megin við mjóa götu, eru stillasar upp með húsinu á móti og þeir eru með lyftu með díselvél sem gengur upp og niður stillasana með miklum látum. Engin leið að sofa lengur og fór því morgunmat kl. 7 (kl. 5 að íslenskum tíma) ásamt öllum hinum gestunum í herbergjum sem snúa eins og mitt.

Kom svo aftur hingað á herbergið til að athuga hvort hér væri internet tenging. Og það var hún svo sannarlega. En það er greinilegt að Telia (stærsta símafyrirtækið þeirra hér í Svíþjóð) kostar þetta því Telia hagar sér eins og vírus og beinir mér í sífellu inn á heimasíðuna sína! Þetta er alveg að gera mig vitlausan.

Læt þetta nægja í bili. Vona að allir hafi það gott.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home