Seinna á laugardagskvöldi
Var að koma heim frá því að fá mér að borða. Fékk mér sérrétt staðarins sem var nautakjöt, steiktur laukur og steiktir kartöfluteningar ásamt einhvers konar sósu og hrárri eggjarauðu. Hefði mátt vera meira af kjöti og lauk en minna af kartöflum. Svíar eru miklar kartöfluætur!
Sat þarna og fylgdist með samferðafólki mínu. Beint á móti mér en í prófíl voru hjón sem sátu hlið við hlið en á móti þeim sat kona sem var eldri en þau en ég var ekki viss um hvort hún væri systir konunnar eða móðir hennar. Þegar reikningurinn kom og hún borgaði sinn hlut í honum komst ég að þeirri niðurstöðu að hún væri systir en ekki móðir. Stuttu eftir að þjónninn tók peningana lagði eiginkonan höndina á læri eiginmannsins og hvíslaði einhverju að honum en hann strauk framhandlegginn á henni á móti. Þetta er mín túlkun á því sem þarna fór fram:
Hún: Í kvöld er laugardagskvöld, þú manst hvað við gerum á laugardagskvöldum.
Hann: Alveg rétt. Í gærkvöldi var föstudagskvöld og þú varst of þreytt. Á morgun er sunnudagskvöld og við þurfum bæði að vakna snemma morguninn eftir. Það sama á við um mánudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag. Eins gott að koma sér heim fljótlega.
Hver segir að það sé leiðinlegt að fara einn út að borða ef maður hefur augun opin og gott ímyndunarafl?

0 Comments:
Post a Comment
<< Home