Sunday, October 01, 2006

Sunnudagskvöld

Komið er sunnudagskvöld og fátt eitt að frétta. Var að vinna á hótelherberginu fram að hádegi en gekk síðan niður í Gamla Stan þar sem ég fékk mér hádegisverð. Fékk mér pasta með laxi og sveppum en sá eftir því. Hefði átt að fá mér grænmetispasta - kannski ég ætti að gerast grænmetisæta. Þessir sænsku pastastaðir leggja allt pasta að jöfnu. Í þessu tilviki fékk ég "pennae" sem er í minnstu uppáhaldi hjá mér af öllu pasta. Var kominn heim á hótel eftir 2 klst og vann fram undir 8 um kvöldið. Fór þá aftur út að borða og nú á pizza stað. Pizza quattro formaggio varð fyrir valinu. Held að ég sé orðin grænmetisæta.

Ég var aldursforsetinn á staðnum. Svíar á mínum aldri fara ekki út að borða nema á föstudags- og laugardagslkvöldum. Þarna voru reyndar Danir á næsta borði. Þeir komust næst því að vera á sama aldri og ég - tæplega fimmtugir sýndist mér.

Við þarnæsta borð voru tveir arabar og tvær sænskar. Önnur þeirra var anorexísk og og borðaði tvo kvaðratsentimetra af pizzunni sinni. Hin náði að klára hálfa pizzuna. Þær sátu svo opimynntar og horfðu á yndislegu kærastana sína hinum megin við borðið sem báðir kláruðu sínar pizzur án erfiðleika. Þeir litu aldrei við stúlkunum heldur töluðu saman sín á milli á arabísku. Að máltíð lokinni drógu báðar stúlkurnar upp kortin sín og borguðu hvor fyrir sig og viðeigandi kærasta. Þeir gengu síðan út þrem skrefum á undan dömunum.

Þetta er Svíþjóð (Ísland?) í dag.

Er með Soprano í gangi í sjónvarpinu meðan ég skrifa þetta. Held að ég fari bar að helga mig Soprano fjölskyldunni, að minnsta kosti í bili. Á morgun verður fyrsti heili dagurinn minn á deildinni.

Lifið heil!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home