Thursday, March 29, 2007

Þrjár myndir

Set aðeins inn þrjár myndir að sinni því að það tekur óratíma að setja hverja þeirra inn.

Þessi mynd er úr íbúðinni okkar. Dyrnar á veggnum eru ekki notaðar því að þær opnast beint út á götu. Myndin er tekin úr útidyragættinni. Fremst er setustofa, síðan eldhúsborð (og vinnuborðið okkar) en í baksýn og reyndar vinstra megin við myndina er eldhúsið. Svefnherbergið er uppi á lofti.
Hér sést hvernig pramminn með fólki í logum helvítis og Jesu með krosinn er borinn um göturnar. Sjáið mannfjöldann sem heldur honum uppi!

Eitt af "teppunum " sem fólk gerir á götunum á sunnudögum fyrir páska, gerð úr lituðu sagi og blómum.




0 Comments:

Post a Comment

<< Home