Allra, allra síðasta bloggið frá Svíþjóð
Sit hérna í flughöfninni á Arlanda og hef ekkert betra að gera en að vafra á netinu. Er að spara Newswwek fyrir flugvélina. Sennileg les þetta enginn því að ég er búinn að tilkynna svo rækilega að ég muni ekki blogga í bráð.
Kom mér af stað á réttum tíma í morgun en datt í hug að taka lestina í staðinn fyrir flugrútuna hingað. Helmingi dýrara en ósköp þægilegt að líða áfram í nýtískulest á 200 km hraða án þess að stoppa á leiðinni.
Fékk mér brauðsneið með rækjum og reyktum laxi (ásamt rauðvínsglasi) þegar ég kom hingað því að morgunmaturinn var ekki upp á marga fiska - hrökkbrauð með örlitlu sméri og sultu. Restin úr ísskápnum. Held ég hafi skilið þokkalega við en Rita verður að losa mig við notuðu rafhlöðurnar sem þráðlausa músin mín át upp af mikilli lyst undanfarnar vikur.
Hlakka til að komast heim - þetta er orðið ágætt. Ég minnist þess þegar ég var í Ófeigsfirði forðum að u.þ.b. 6 vikna samfelld vinnutörn er alveg mátulegt. Næst þegar ég verð í þessari aðstöðu að fara einn í sabbatical hugsa ég að ég haldi mig við 6 vikur. Eftir það minnkar framleiðnin.
Nú verður kallað inn í flugvél eftir ca hálftíma og læt ég því staðar numið í bili.
Lifið heil!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home