Saturday, November 18, 2006

Ekkert að frétta

Já, þetta verður stutt. Það er sem sé ekkert að frétta. Svaf vel út í morgun. Er búinn að vera að heima að myndast við að vinna fyrir utan stutta ferð niður í Sickla köpkvarter að kaupa nauðsynjar.

Annars er ég búinn að vera að horfa á þátt á Discovery um Brasilíu með öðru auganu. Skemmtilegur og fróðlegur þáttur. Hún Maja, vinkona okkar, hefði þurft að sjá hann áður en hún fór þangað um daginn til nokkurra mánaða dvalar.

Ég gleymdi að nefna það í gær að á fimmtudagskvöldið var einhver svo sniðugur að koma með fartölvuna sína inn í matsalinn (eftir matinn) til að gá hverjir hefðu fengið styrk frá FORMAS, sem er rannsóknarsjóður þeirra Svía, sambærilegur við RannÍs á Íslandi, en upplýsingar um styrkþega voru settir á netið þá um kvöldið. Í ljós kom að hlutur dýrafræðideildarinnar var mjög rýr, sem mun setja strik í reikninginn fyrir deildina á næsta ári því að deildin tekur töluvert "overhead". Anders hafði sótt um 20 milljóna króna styrk á ári til þriggja ára og fékk ekki. Ég spurði hvort upphæðin hefði ef til vill verið of há til að hann fengi styrkinn. Hann taldi þetta hafa vera ósköp hóflega umsókn. Af einhverri ástæðu hafði grasafræðideildin komið vel út úr umsóknarferlinu. Kannski grasafræði verði næsta tískufagið í Svíþjóð.

Menn létu þetta greinilega töluvert fá á sig og eldri kynslóðin var fremur niðurdregin þarna um kvöldið. Nemendurnir voru hins vegar kátir enda flestir búnir að flytja sína fyrirlestra og vildu halda upp á það, auk þess sem niðurstöðurnar í ár munu koma lítið við þeirra eigin verkefni.

Svona er lífið!

Lifið heil!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home