Tuesday, October 31, 2006

Kvenmannslaus í kulda og trekki!

Jæja, þá er Ásta farin heim. Við vorum samferða í gærmorgun á T-Centralen þar sem hún fór í flugrútuna út á völl en ég í deildina. Kvöldið áður fórum við að borða í Óperunni. Þar eru reyndar fjórir veitingastaðir og einn þeirra mun vera sá allra flottasti í Stokkhólmi. Þangað fer maður ekki slifsislaus! Við vorum auðvitað ekki þar en samt var þetta flott.

Í gær var sólskin og fallegt veður en í dag er rigning. Svo á sólin aftur að skína á morgun en þá kólnar og heldur svo áfram að kólna fram á helgi og búast má við snjókomu undir helgi. Veturinn nálgast.

Héðan er nákvæmlega ekkert að frétta. Ég ákvað að vera heima fram að hádegi og klára að lesa kaflana í bókinni um Sauðeyjarféð (Soay sheep) sem við fjöllum um á föstudaginn. Þá þarf ég ekki að hugsa meira um það í bili. Svo var ég bara latur að koma mér af stað, svona aleinn í kotinu og öll þessi rigning og allt það!

Lifið heil!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home