Wednesday, October 25, 2006

Miðvikudagur

Þetta verður stutt enda ekkert að frétta. Hér er mun kaldara í dag en að undanförnu en engin rigning sem er breyting til batnaðar.

Fór í deildina eins og venjulega en hætti snemma, kl. 16, til að hitta Ástu á T-Centralen. Ætlunin var að versla en heldur gekk það hægt. Vorum að leita að regnkápu/úlpu á Ástu og úlpu á mig. En svo gerðist það auðvitað að ég fann úlpu sem passaði og bætti svo skyrtu við. Ástu vantar enn regnkápuna. Svona er þetta bara.

Borðuðum í bænum í rólegheitunum. Þegar við ætluðum að taka strætó við Slussen var löng bið framundan þannig að við gengum hálfa leið heim áður en vagninn náði okkur. Höfðum gott af göngunni (nema hvað?).

Nú er ég sennilega endanlega búinn með greininguna sem ég hef verið að vinna við og útbúa fyrirlesturinn fyrir Blóðbaðið. Hann er reyndar nokkuð langur, 62 myndir fyrir 45 mínútur. Þarf að athuga hvort ég get stytt hann lítillega. Geri það seinna. Fyrst er að skrifa drög að grein, eða réttara sagt greinum því að þetta er efni í tvær greinar. Ætla ekki að verja miklum tíma í það (fáeinum dögum) á þessu stigi enda er margt annað sem ég vil gera hérna næstu vikurnar.

Mér sýnist að hann byrji að rigna aftur á morgun.

Lifið heil!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home