Sunday, October 15, 2006

Helgin nánast liðin

Já, tíminn líður.

Hef verið að vinna í gögnunum mínum alla helgina og haft gaman af. Eitt leiðir af öðru og erfitt að hætta. Mér finnst ég skilja breytingarnar í refastofninum undanfarin 50 ár betur núna en nokkurn tíma. Þess vegna hef ég ekki getað slitið mig frá úrvinnslunni. Því miður hef ég fyrir bragðið ekki gert það sem ég ætlaði að gera (fyrirgefðu Ester!).

Fór í rúmlega klukkustundar göngutúr bæði í gær og í dag. Þetta er mjög skemmtileg svæði til gönguferða en auðvitað er þetta ósköp "tamið". Ekki miklar líkur á að rekast á elg eða úlf, gaupu eða greifingja.

Ákaflega fallegt veður í dag, sólskin og blíða, 14°C. En nú sé ég á www.vedur.is að gert er ráð fyrir norðaustanátt alla næstu viku á Íslandi. Það þýðir að lægðirnar fara sunnan við Ísland og skella á Norður-Evrópu í staðinn. Því má gera ráð fyrir úrkomu hér.

Engar fréttir sem sé. Engar fréttir = góðar fréttir.

Lifið heil!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home