Wednesday, October 04, 2006

Miðvikudagur

Kæra dagbók!

Í morgun ferðaðist ég í fyrsta skipti frá íbúðinni til háskólans með strætisvagni og lest. Sem betur fer stoppar vagninn nánast beint fyrir utan blokkina. Ferðin þaðan að Slussen tekur 16 mínútur. Í Slussen skipti ég yfir í neðanjarðarlest sem ég tek alla leið til háskólans. Sú ferð tekur 15 mínútur í viðbót. Þetta tekur því svona 35-40 mínútur í allt eftir því hvort ég þarf að bíða eftir strætó.

Ég hafði hauskúpurnar meðferðis í plastpoka og í staðinn fyrir að fara í dýrafræðideildina fór ég í fornleifafræðideildina. Var mættur þar á mínútunni kl. 9 eins og um hafði verið rætt og þar hitti ég hitti Kerstin og Anders. Því miður var það almennt álit sérfræðinganna á staðnum að hauskúpurnar væru ekki mjög gamlar, kannski nokkurra áratuga, kannski nokkur hundruð ára. Að vísu tóku þau skýrt fram að auðvitað færi þetta allt eftir því hvernig aðstæður hefðu verið á staðnum síðan dýrin drápust. Það var samt ákveðið að bora í allar hauskúpurnar og freista þess að einangra kollagen úr þeim til aldursgreininga og hugsanlegrar DNA-greiningar. Þar sem hver aldursgreining kostar 30 þús. kr. var ákveðið að aldursgreina bara kollagen úr einni hauskúpu í upphafi og sjá svo til.

Kerstin sýndi mér svo alla fornleifafræðideildina og þar er sko aldeilis tækjabúnaðurinn!!! Allt sem hugur hvers fornleifa- og fornlífsfræðings kann að girnast. Ég ætla ekki einu sinni að reyna að byrja að telja það upp.

Anders sýndi mér svo aðalbókasafnið og bókasafn deildarinnar svo að mér ætti ekki að vera neitt að vanbúnaði að leita fróðleiks þar þótt nánast öll tímarit séu núna aðgengileg á netinu, ýmist í gegnum net HÍ eða Stokkhólms háskóla.

Dagurinn fór svo í að vinna við úrvinnslu og undirbúning greinar með dálitlu hléi í hádeginu og fyrirlestri gestafyrirlesara frá Bandaríkjunum strax á eftir.

Kom mér af stað áleiðis heim kl. 17:40 og keypti mér mánaðarkort í allar neðanjarðarlestir og strætisvagna. Mér sýnist að það geti sparað mér 10 þús. ísl. kr á mánuði.

Þegar ég kom á verslunarsvæðið í Sickla var búið að loka flestum verslunum þar nema Kvantum og aðeins virtust vera tvö veitingahús á svæðinu, ítalskur staður og tyrkneskur kebabstaður. Prófaði þann síðarnefnda en endaði á að fá mér hamborgara þar. Bað um diet Coke með en eitthvað átti íslensksænskan mín illa við tyrkjasænskuna því að ég fékk pilsner! Lét mér það vel líka.

Þegar ég kom að blokkinni dró ég upp minnisblaðið með kóðanum fyrir dyrnar (hér fer maður varla í gegnum dyr án þess að slá inn kóða á þar til gert spjald). Nema hvað kóðinn virkaði ekki! Reyndi nokkrum sinnum í viðbót en allt kom fyrir ekki. Reyndi að hringja í Ritu en fékk bara rödd sem tilkynnti að þetta númer væri ekki skráð! Reyndi aftur - og aftur - en allt kom fyrir ekki. Þegar ég var lagður af stað frá húsinu til þess að prófa bakdyrnar komu miðaldra hjón út úr húsinu. Ég reyndi að sannfæra þau um að ég byggi í húsinu en þau gerðu mig alveg ruglaðan með því að segja þetta vera hús númer 36 en ekki 41. Loksins samþykktu þau að þetta væri hús númer 41. Það kom sem sé í ljós að þau búa ekki í húsinu heldur virtust þau vinna fyrir póstþjónustuna. Þegar þau voru búin að sannreyna að minn kóði virkaði ekki, ákváðu þau að prófa kóða póstþjónustunnar sem sennilega virkar á allar blokkirnar á svæðinu. Sá kóði virkaði ekki heldur. Þá dró karlinn upp lykil og reyndi hann. Í fyrstu virtist hann ekki duga en svo opnuðust dyrnar loksins eins og fyrir kraftaverk. Ég verða að viðurkenna að ég var frekar feginn að þurfa ekki að sofa utandyra í nótt.

Ég sendi svo fyrirtækinu, sem ég leigi af, tölvupóst og sagði mínar farir ekki sléttar. Vona að kóðinn verði kominn í lag á morgun. Já, meðal annarra orða - eigandi íbúðarinnar (nafn hans/hennar er á hurðinni) heitir M. Sahlin. Mona Sahlin er ráðherra í ríkisstjórninni en hún varð að segja af sér fyrir nokkrum árum fyrir að lifa hátt á kostnað ríkisins og nota kreditkort ráðuneytisins til að kaupa sér föt fyrir hundruð þúsunda króna. En hún er nú búin að fá uppreisn æru og orðin ráðherra á ný (http://www.regeringen.se/sb/d/1193) þótt það standi reyndar ekki mikið lengur því að stjórnin féll í kosningunum um daginn. Skyldi hún eiga íbúðina?

Jæja, leit aðeins á póstinn minn og var þá ekki komið svar frá fyrirtækinu sem leigir mér íbúðina. Það er sem sé búið að breyta kóðanum!!! Er búinn að skrifa nýja kóðann hjá mér. Eins got að ég var ekki búinn að læra þann gamla utan að!

Lifðu heil, kæra dagbók.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home