Monday, October 02, 2006

Fyrsti vinnudagurinn

Kominn heim á hótel eftir fyrsta daginn í "vinnunni". Mætti með fartölvuna í morgun og fyrsta verkið var að fá hana skráða og tengda svo að ég geti notað netið á staðnum. Fékk úthlutað skrifborði í herbergi með tveim öðrum, svertingja frá Afríku sem ég veit lítið um enn þá, og konu sem ég er ekki farinn að sjá. Lærði líka á kaffikerfið hjá þeim.

Anders mætti á staðinn upp úr kl. 11 og var hálfþreyttur og enn á kanadískum tíma. Fórum í hádegismat með Peter, nemanda Anders, og síðan sátum við Anders saman og ræddum greinar í bígerð. Margt spennandi í farvatninu. Á miðvikudagsmorgun mun ég mæta með hauskúpurnar á rannsóknarstofu Karenar (konu Anders sem er prófessor í fornleifafræði) þar sem öll aðstaða er fyrir hendi til að ná DNA úr gömlum vefjum. Veronika, annar nemandi Anders (sú sem er að vinna við mammútana), mun ná kollageninu úr hauskúpunum en það sparar kostnað við aldursgreiningu sem mun fara fram í Uppsölum.

Anders vill fá mig sem meðleiðbeinanda Karinar, eins doktorsnemans hans, en ég á eftir fræðast meira um verkefnið hennar áður en ég ákveð hvort ég tek þetta að mér. Við verðum með fund um þetta á föstudaginn.

Um miðjan nóvembermánuð verður haldið svo kallað "blóðbað" deildarinnar í rannsóknarstöðinni í Tovetorp (um 100 km sunnan við Stockholm) þar sem doktorsnemar og gestir halda fyrirlestra. Þar verður mér úthlutað 40 mínútum til að halda fyrirlestur. Eins og nafnið bendir til er gert ráð fyrir hreinskilnum skoðanaskiptum um gæði rannsóknanna sem fyrirlestrarnir byggjast á!

Á morgun flyt ég í íbúðina. Á að vera mættur þar kl. 14 svo að ég fer ekki í deildina heldur nota daginn til að læra á hverfið og átta mig á hvernig er hagkvæmast að komast þaðan í deildina o.s.frv.

Nú er þessi fjögurra manna fjölskylda dreifð á 4 lönd. Hersteinn er á Íslandi, Páll Ragnar er í Danmörku, Ásta á Ítalíu og ég í Svíþjóð. Ásta kemur svo aftur til Íslands á þriðjudaginn eftir viku.

Vona að allri hafi það sem best.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home