Íbúðin
Er fluttur í íbúðina. Var upp á hótelherbergi að vinna til hádegis en þurfti að rýma herbergið kl. 12. Hótelið var ekki tilbúið til að taka ábyrgð á ferðatösku og fartölvu svo að ég sat niðri í móttökunni til kl. 13:30 (og las um aðferðir til að rannsaka stofnstærðarbreytingar) þegar ég lét hringja á leigubíl fyrir mig. Hann lét bíða dálítið eftir sér, í korter svo að ég sé nákvæmur, og mér vara hætt að lítast á blikuna því að ég var búinn að tilkynna að ég yrði kominn kl. 14 í íbúðina. Hefði samt ekki þurft að hafa áhyggjur því að umferð var lítil og ég sté út úr bílnum á mínútunni 13:58 og náði að finna íbúðina á tveim mínútum!
Á móti mér tók Rita, konan sem gerir hreint í íbúðinni. Áð giska fertug og í vextinum eins og frjósemisgyðja frá steinöld. Ákaflega elskuleg og þægileg. Sýndi mér allt sem sýna þurfti í íbúðinni og hvernig ég kemst niður í verslunarhverfið hér fyrir neðan. Rita mun mæta vikulega og taka til, skipta um handklæði o.s.frv.
Því miður hef ég ekki útsýni úr íbúðinni - gleymdi að taka tillit til trjánna sem skyggja á allt. Þetta er ágætisíbúð en húsið er aðeins farið að láta á sjá enda er það sennilega byggt á 7. áratuginum. Mætti samt vera meira á veggjunum en þeir eru nánast auðir.
Tæmdi töskurnar og kom mér fyrir. Labbaði svo niður í verslunarmiðstöðina hér fyrir neðan. Þangað liggur göngustígur í gegnum dálítinn trjálund - aðeins 5 mínútna gangur. Örlítil rigning en svo stytti upp. Uppgötvaði að ég hafði ekki fengið mér hádegismat og stóðst því ekki mátið að fá mér Canneloni á ítölskum stað. Fór svo í Hagkaup þeirra Svía - man ekki í augnablikinu hvað það heitir - Kvanta eða Kvantum eða eitthvað svoleiðis. Keypti mér helstu nauðsynjar og rölti með þær upp í íbúð.
Svo er bara að mæta í deildina í fyrramálið kl. 9!
Vona að allir hafi það gott.

1 Comments:
Loksins farinn að lesa þetta! Skemmtileg lesning. "frjósemisgyðja frá steinöld" ég sé fyrir mér kringlóttan steinklump :)
Post a Comment
<< Home