Moskítóflugur elska mig
Það var svo sem ekki að sökum að spyrja. Ég er með fjögur myndarleg moskítóbit á fingrum og handarbökum og eitt á enninu eftir ferðina til Tovetorp. Heyrði reyndar í einni þeirra þarna úti við um kvöldið en hélt að ég hefði snúið hana af mér. Það var svolítið sérkennilegt að kaupa sér After-Bite í apótekinu áðan, svona þegar komið er fram undir miðjan október.
Í morgun var afskaplega fallegt veður, sólskin og blíða en greinilega kaldara en hefur verið að undanförnu. Ég sá í strætó á einhverjum hitamæli á leiðinni í deildina að hitinn var 8°C.
Dagurinn gekk svo fyrir sig eins og venjulega. Ekkert meira um það að segja. Þegar ég kom út var farið að draga fyrir sól og einhvern veginn hef ég það á tilfinningunni að góða veðrið sé að verða búið.
Kom við í apótekinu á bakaleiðinni til að kaupa After-Bite, eins og áður sagði, síðan heim. Varpaði öndinni léttara þegar kóðinn að útihurðinni virkaði - ég fæ alltaf vægt kvíðakast þegar ég kem að útihurðinni eftir reynsluna um daginn.
Ákvað að vígja örbylgjuofninn og setja einhvern tilbúinn rétt inn í hann sem ég hafði keypt á laugardaginn. Samvæmt forskriftinni átti hann að vera 12 mínútur á hæsta styrk. Koma aftur í eldhúsið eftir 12 mínútur slefandi af svengd: Rétturinn var jafnfrosinn og þegar ég setti hann í ofninn! Reyndi hvað ég gat að koma honum í gang, án árangurs. Diskurinn snerist og allt það en greinilega engar örbylgjur. Þegar þessar línur eru ritaðar er rétturinn í bakarofninum þar sem hann á að vera í 45 mínútur.
Já, þessi litlu ævintýri sem maður lendir í hversdagslega!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home