Fimmtudagur
Héðan er ekkert að frétta. Ekkert! EKKERT!
Finnst samt að ég verði að skrifa eitthvað, kæra dagbók. Kom mér í vinnuna í strætó og lest og síðan var ég bara í vinnunni í allan dag! Hélt áfram að vinna úr gögnum fyrir grein um stofnvistfræði tófunnar. Þetta er tímafrekt en miðar þó áfram. Og svo sömu leið til baka. Spjallaði dálítið við herbergisfélaga minn sem er frá Zanzibar fyrir ströndum Tanzaníu en hann er að rannsaka höfrunga þar. Viðkunnanlegur náungi en vinnusamur og frkar þögull sem er ágætt.
Fékk skeyti frá Ester og Menju, ólík skeyti en sýna þó bæði að þar er eitthvað að gerast, sem er gott. Mun leggjast yfir viðkomandi mál um helgina.
Er að hlusta á sjónvarpsfréttir á RÚV (reyndar Kastljósið núna) í tölvunni meðan ég skrifa þetta. Ágætt að fá Ísland í æð líka.
Held að Frasier sé að byrja í sjónvarpinu (er með 20 stöðvar sem dálítill munur frá því að vera eingöngu með gömlu gufuna heima) og læt því staðar numið.
Meira á morgun.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home