Saturday, October 07, 2006

Rigning á laugardegi

Nú er laugardagur og hellirignir. Það er líka þokkalega hvasst og gulnuð laufblöð falla af eikum og beykitrjám fyrir utan gluggann minn. Þó eru afskaplega fá gulnuð lauf á trjám almennt - eg veit eiginlega ekki hvaðan þau koma, þessi laufblöð sem fjúka hjá.

Í gærmorgun var fundur í doktorsnefnd Karinar Nyström og var ég beðinn um að mæta á fundinn. Farið var yfir hennar mál og óhætt er að segja að henni hefur gengið vel á þessu fyrsta ári. Í lok fundar var ég spurður hvort ég vildi verða meðleiðbeinandi hennar og sitja í nefndinni. Þótt ég vissi af þessari hugmynd átti ég ekki beinlínis von á að verða spurður á fundinum - hélt að ég fengi lengri umþóttunartíma. Ég samþykkti að verða meðleiðbeinandi.

Í lok vinnudags, um 6-leytið, mætti Anders á skrifstofuna mína með tvo flöskubjóra sem við drukkum í rólegheitunum og spjölluðum. Síðan fórum við niður í bæ, ég með fartölvuna um öxl, skruppum á enskan pöbb og fengum okkur alvörubjór. Þaðan fórum við á veitingahús í Konunglegu óperunni. Þar eru tvö veitingahús, annað þar sem þarf að mæta í jakkafötum og með bindi og svo hitt. Þið megið giska þrisvar á hvorn staðinn við fórum. Meðan við vorum þar hringdi Ásta, þá stödd í leigubíl með Kristínu í Róm á leið á norræna hátíð þar sem Sjón var heiðursgestur.

Loks gengum við yfir í Gamla stan og fengum okkur drykk áður en hvor hélt til síns heima. Var kominn heim klukkan hálfeitt - löngu eftir venjulegan háttatíma.

Anders talaði um að bjóða mér annað hvort í sumarhúsið í Tovetorp í sveppatínslu í dag eða heim til sín í mat í kvöld. Honum líst greinilega ekki á rigninguna fyrir sveppatínslu því ég hef ekkert heyrt frá honum enn þá.

Í millitíðinni reyni ég að vinna eitthvað.

Góða helgi!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home