Sunday, October 08, 2006

Tófuþorp

Þrátt fyrir rigninguna í gær hringdi Anders um þrjúleytið og stakk upp á að við skryppum í sumarhúsið hans í Tovetorp. Kerstin og börnin, Erik (15 ára) og Karen (11 ára) eru öll í handboltanum. Kerstin æfir og leikur enn þá þótt hún sé orðin 46 ára en auk þess þjálfar hún telpnalið. Erik er markvörður í sínu liði. Afleiðing þessa alls er sú að laugardagar eru teknir upp af handbolta hjá þeim öllum. Við fórum því bara tveir.

Við lögðum sem sé af stað einhvern tíma upp úr kl. 4 í gær og þurftum að stoppa á tveim stöðum, annars vegar til að kaupa sérstaka gifsmálningu fyrir sumarhúsið og hins vegar til að fara með vélsög í viðgerð. Vorum því ekki komnir á staðinn fyrr en rétt fyrir kl. 18. Byrjuðum á því að rölta inn í skóg fyrir aftan húsið þar sem við tíndum slatta af kantarellum og gulbroddum. Fundum enga kóngasveppi en þeir eru víst á svæðinu.

Náðum síðan í kolagrill inn í skúr og komum því fyrir utan við eldhúsgluggann. Ég sá um að grilla kjötið og laukinn en Anders útbjó salad og steikti sveppina. Indælis máltíð. Við vorum svo ekki búnir að borða fyrr en um miðnætti og fórum allt of seint að sofa.

Sváfum fram eftir og ég var rétt nýbúinn að opna augun þegar Ásta hringdi. Hún var í vandræðum með að finna flug frá Róm til Mílanó og ætlaði að athuga hvort ég gæti gert það á netinu. En ég var sem sé fjarri nettengingu og gat ekki hjálpað.

Eftir morgunmatinn fórum við í alllangan göngutúr út í skóg ot tíndum sveppi. Fundum töluvert af kantarellum og gulbroddum en auk þess tíndum við mikið af frænku kantarellunnar sem þeir nefna "Trattkantarell" (Cantharellus tubaeformis) og er víst ekki síðri matsveppur(http://www.svampguiden.com/art.asp?art=cantharellus_tubaeformis). Ég hafði nú ekki hugsað mér að halda neinu af sveppunum en Anders heimtaði að ég héldi því sem ég tíndi svo að nú er ég að reyna að þurrka sveppi hér á gluggakistunni. Ég tímdi eiginlega ekki að skera þá mikið niður svo að ég vona að þeir nái að þorna áður en þeir mygla. Við sjáum til.

Hvað veðrið varðar, þá stytti upp á leiðinni til Tovetorp og var orðið ljómandi gott veður þegar þangað kom. Ekki var veðrið síðra í morgun. Glaðasólskin og næstum því of heitt að sitja úti undir húsvegg. Þarna sá ég stærstu geitunga sem ég hef séð (held ég). Þernurnar voru fullra þriggja sentimetra langar en drottningarnar munu vera 5-6 sentimetra langar! Sá þó engar drottningar. En þessi tegund er víst ekki sérlega árásargjörn.

Svo hefst ný vinnuvika á morgun!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home