Aftur komin helgi
Hér í Sickla var glaðasólskin þegar ég fór að heiman á föstudagsmorgni en svartaþoka á háskólasvæðinu þegar þangað kom. Um hádegi var þokan horfin og veðrið orðið hreint frábært.
Gekk vel í vinnunni. Anders bauð mér í mat í gærkvöldi og fékk ég nákvæmar lýsingar á því hvernig ég ætti að komast heim til hans. Fyrst með neðanjarðarlest til Östermalmstorg, skipta þar um neðanjarðarlest og fara til Ropsten. Skipta þar og fara í venjulega lest út á Lidingö og fara út á stoppistöðinni Larsberg. Ganga þaðan eftir korti heim til hans.
Ég gat ekki dregið mig frá gögnunum fyrr en klukkan korter yfir sex og var því nokkru seinna á ferðinni en ég hafði hugsað mér. Þurfti líka að bíða dálítið eftir lestinni í Ropsten. Þegar ég kom var Kerstin um það bil að fara í partý hjá doktorsnemanum sínum, klædd í síðkjól, enda geri ég ráð fyrir að karlarnir hafi verið í kjóli og hvítt þar. Anders keyrði hana svo að ég sneri mér að því að marinera kjötið en Anders var þegar búinn að setja kartöflurnar á grillið. Fékk mér svo bjór (hafði verið bent á að gera það!) og beið úti á svölum í góða veðrinu. Þegar Anders kom til baka voru kartöflurnar tilbúnar svo að ég sneri mér að því að grilla meðan Anders lauk við að útbúa salad og sveppasósu úr sveppunum sem við tíndum um síðustu helgi. Ég held svei mér þá að þessar trantkantarellur séu betri en venjulegar kantarellur.
Krakkarnir þeirra voru þarna auðvitað. Erik er 15 ára og Karen er 11 ára. Erik hefur lent í einelti og gekk það svo langt að þau létu hann skipta um skóla í haust. Fer ekki nánar út í það hér en þetta er víst búið að vera mjög erfitt.
Ég tók svo lestina kl. 23:33 til Ropsten, náði strax í lest áfram til Slussen en þar þurfti ég að bíða í tæpar 20 mínútur eftir strætó. Kominn heim kl. korter í eitt.
Hef nú setið við tölvuna og unnið í nokkra klukkutíma fyrir utan stuttan göngutúr niður í Sickla köpkvarter til að fara í búðir. Er að velta því fyrir mér að fá mér göngutúr niður á strönd áður en myrkur skellur á en reyna annars að nota helgina vel. Hér er núna skýjað og og dálítil gola en einhvers staðar sá ég að spáð var 14°C í Stokkhólmi í dag.
Góða helgi!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home