Miðvikudagskvöld
Bara venjulegt kvöld í kvöld. Kominn heim um klukkan hálfátta, át restina af köldum kjúklingi síðan í fyrrakvöld með kartöflusalati og asparagus! Náði í restina af þætti um Dr. Phil (skyldi hann vera á hverju kvöldi?). Ekki eins hrifinn núna og síðast. Hann var svo sem ósköp skynsamlegur sjálfur í öllu sem hann sagði en efnið var svolítið sérstakt og ekki fyrir minn smekk: Fegurðarsamkeppni barna! Mikil rosaleg eigingirni er í þessum konum sem byrja að senda myndir af börnunum sínum jafnvel meðan þau eru innan við hálfs árs gömul! Ruglað fólk.
Hvað um það. Ekkert blogg í gærkvöldi því ég fór út að borða með Anders og Kerstin og breskum fornleifafræðingi sem er búinn að vera í heimsókn í deildinni hjá Kerstin. Skildi tölvuna því eftir í deildinni. Fórum á ítalskan stað í grennd við Odenplan (fyrir þá sem þekkja anatómíu Stokkhólms). Fékk mér lambakjöt með gnocchi! Ágætismatur en hef oft borðað betra lamb. Það var fróðlegt að pumpa fornleifafræðingana um menninguna til forna, hvernig þeir skilgreina breytingarnar frá einu menningartímabili til annars o.s.frv. Komumst að því að fornleifafræðingar virðast flestir telja að menningin breytist fyrir einhverju "innra" afli, sem sé án utanaðkomandi afla, nema þá fyrir áhrif frá annarri menningu. Við Anders lögðum áherslu á að breytingar á loftslagi (og þar af leiðandi plöntu- og dýralífi) hlytu að hafa áhrif á menninguna. Kerstin var sammála (enda hugsa ég að hún og Anders hafi oft rætt þetta) en þetta virtist vera nýtt sjónarhorn fyrir Bretann. Sá er reyndar að grafa upp og rannsaka rústir í grennd við Stonehenge. Ef ég skildi hann rétt, telja þeir að það sé strúktúr sem hafi svipað til Stonehenge en þar sem hann var úr tré er erfiðara að ráða í hann.
Héðan er annars allt gott að frétta. Vel gengur í "vinnunni" og ég uppgötva alltaf eitthvað nýtt á hverjum degi um það sem knýr refastofninn heima. Ég þurfti svo sannarlega á því að halda að geta einbeitt mér að þessu. Stofninn sá er svo sannarlega undir "density dependent" stjórn, Ester.
Já, Ester er í Tromsö og hét fyrirlestur um verkefnið sitt í gær. Er óróleg vegna þess að Nigel Yoccoz (tölfræðigúrú) veifaði vísifingri að henni á eftir og sagðist að þau þyrftu að tala saman við fyrsta tækifæri. Það getur ekki nema verið af hinu góða - hann sér væntanlega eitthvað í gögnunum hennar frá öðru sjónarhorni en við höfum gert. Það er einmitt tilgangurinn með dvöl hennar þarna.
Heyri frekar lítið frá öðrum nemendum mínum. Veit þó að Menja og Róbert hafa (meira en) nóg að gera. Á Snæfellsnesi hafa minkaveiðar og minkamerkingar verið í fullum gangi í tvo mánuði en svo virðist sem minkastofninn sé lítill núna því að lítið veiðist. Ef það er vegna þess að stofninn er lítill þarf það ekki að vera svo alvarlegt. Fyrir óinnvígða er tilgangurinn tvíþættur, annars vegar að reyna að ákvarða náttúruleg vanhöld minka og hins vegar að ákvarða stofnstærð. Menja ætti nátturulega ekki að koma nálægt þessu heldur einbeita sér að sínu verkefni - en svona er þetta samt (veit að þú lest þetta, Menja).
Hef ekki heyrt múkk frá Gunnari og Guðbjörgu. Treysti því að þar sé allt í góðu.
Sem sé - ég leyfi mér að hugsa til nemendanna (og fjölskyldunnar) á kvöldin en á daginn er ég í mínum eigin (refa)heimi!
Lifið heil!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home