Monday, October 16, 2006

Dr. Phil!

Halló, halló!

Kom heim klukkan rúmlega 7 eftir ágætan dag í "vinnunni" (innan gæsalappa því mér finnst svo gaman að geta einbeitt mér að úrvinnslunni sem gengur mjög vel). Kveikti í rælni á sjónvarpinu og hitti á upphafið að þætti Dr. Phil. Þar sem ég hef aldrei horft á þátt með Dr. Phil áður (ekkert nema gamal gufan í Blesugrófinni) kom þátturinn mér þægilega á óvart. Ef allir þættirnir með þessum náunga eru af sama "kaliber" og þessi er ég sannfærður um að bæði Jón og séra Jón (og þeirra konur, kærustur, dætur, mæður og systur) hafa gott af að horfa á þá. Ég var aðallega hrifinn af því hvað hann virtist hafa lagt mikla vinnu í að velta fyrir sér vandamálum viðkomandi og hvað ráðleggingar hans höfðu almennt gildi, langt út fyrir aðstæður viðkomandi fólks. Þar sem ég er viss um að flestir sem lesa þetta (nema Ásta) hafi horft á fjölda þátta með Dr. Phil geri ég ráð fyrir að ég sé að ég er að predika yfir hinum trúuðu og hef því ekki fleiri orð um þetta.

Átti fund í dag með Anders og Bodil (fyrrum doktorsnema Anders sem nú er post-doc í Uppsölum en er einn dag í viku hér við deildina) og ræddum möguleikann á sameiginlegri grein. Enn á ný er um að ræða þennan skemmtilega mun sem er á aðstæðum tófunnar á Íslandi og í Skandinavíu. Stefnt að því að vera komin með drög að handriti áður en ég hverf héðan í lok nóvember.

Enn er varla hægt að tala um að hér sé komið haust. Skýjað í dag en ósköp milt veður. Hef ekki séð spá fyrir Stokkhólm en mér sýnist á veðurspá heima að hér muni fara að rigna fljótlega. Vildi gjarnan halda lengur í sumarið.

Anders stakk upp á því að ég kæmi út að borða annað kvöld. Kerstin er með breskan gest við fornleifafræðideildina sem hún býður út að borða. Hún lét þau boð út ganga í deildinni hjá sér að deildin borgaði fyrir þá sem vildu koma. Enginn sýndi áhuga! Hún býður því Anders með sér og Anders stakk upp á að ég kæmi líka - hann lofaði þó ekki að fornleifafræðideildin mundi borga. Hvað um það, ég er búinn að vera svo sparsamur í matarinnkaupum undanfarið að ég má alveg við því að fara út að borða. Mér sýnist í fljótu bragði að ég eyði ca 750 ísl. kr. á dag í mat að jafnaði dags daglega. Það er um 30 þúsund á mánuði. Er það ekki frekar lítið í ljósi þess að ég elda aldrei sjálfur? Jæja, mér er sama hvað ykkur finnst - mér finnst það!

Í breinu framhaldi af þætti Dr. Phil var þáttur um konu sem hjálpar fólki við að laga ósiði hjá hundum. Sá reyndar sambærilegan þátt áður, sennilega fyrir nákvæmlega viku. Ég hafði ekki síður gaman af þessum þætti. En hvað fólk og hundar eru líkar skepnur!

Var sem sé búinn að slappa af fyrir framan sjónvarpið í hátt í 2 tíma þegar ég skipti yfir á CNN og settist við að skrifa þessar línur. Það er hægt að gera allan fjandann með CNN í bakgrunninum! Klukkan bráðum orðin 10 að kvöldi en ég hef enn þá klukkutíma til að vinna (sem sé að gera eitthvað af viti). Ykkur til upplýsingar er verið að fjalla um Guinness einmitt núna og þar kemur auðvitað ekkert fram sem ég vissi ekki fyrir!

Lifið heil!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home