Friday, October 20, 2006

Þriðja vikan á enda

Þá er þriðja vikan hér í Stokkhólmi á enda sem þýðir að þriðjungur dvalarinnar er að baki. Þótt ég sé búinn að vinna "baki brotnu" og hafi komist vel áfram, er ég eiginlega alveg steinhissa á því hve tíminn hefur liðið hratt. Í rauninni hefði ég þurft að vera hér í 3-4 mánuði.

Það var rigning í dag og því miður sýnist mér á veðurspánni að það eigi að rigna nánast stanslaust næstu daga. Þetta er svo sem ekkert úrhelli en þó rigning. Þannig er það bara þegar það er norðanátt á Íslandi.

Hélt áfram úrvinnslunni og um leið er ég að semja fyrirlestur til að halda í blóðbaðinu í nóvember. Er að verða búinn að þessu og þarf að semja drög að grein upp úr þessu. Við Anders ætlum að setjast saman í næstu viku og reyna að átta okkur á því hvað við getum gert saman meðan ég er hérna, en þessi grein sem ég er að vinna að er í mínu nafni þótt ég hafi grætt heilmikið á að spjalla við Anders.

Ég tek þátt í lesnámskeiði sem Anders heldur með doktorsnemum sínum. Þeir eru að lesa bók sem við munum fjalla um á nokkrum fundum. Ég á þessa bók og hafði samband við Ragnhildi, ritara líffræðiskorar, og bað hana um að brjótast inn á skrifstofuna mína og finna bókina og senda mér hana. Hún er nú komin svo að ég býst við að kíkja í hana í kvöld en fyrsti fundurinn um hana með nemendunum verður líklega á fimmtudaginn. Ég held að nemendurnir fá eina sænska einingu fyrir þetta.

Nú er hún Ásta mín að koma á morgun svo að ég mun hafa einhvern til að tala við á kvöldin næstu 9 daga eða svo! Því er ekki líklegt að ég verði jafnduglegur við bloggið á meðan hún er hér og að undanförnu.

Lifið heil!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home