Saturday, October 21, 2006

Frúin mætt á staðinn!

Ásta kom í dag. Við töluðum saman í gærkvöldi og af rælni var ákveðið að ég hringdi í hana í morgun kl. 6:30 að sænskum tíma, 4:30 að íslenskum tíma, bara til öryggis, en hún hafði hringt í 118 til að fá vakningu kl. 4:30. Þegar við erum bæði á landinu og þurfum að vakna snemma vegna utanlandsferðar látum við alltaf útvarpsklukkuna fara í gang á þeim tíma sem við látum 118 vekja okkur en Ásta treysti sér ekki til að gera það, sagðist ekki kunna á klukkuna: þess vegna átti ég að hringja. Ég gerði það vitaskuld en 118 hringdi aldrei svo að ef ég hefði ekki hringt hefði Ásta sennilega sofið yfir sig og ekki komist! Ekki nógu gott!

Við hittumst á T-Centralen en það gekk svona og svona því að svæðið er æði stórt. Töluðum mikið saman í síma í gegnum Ísland. Komum okkur svo hingað í íbúðina með neðanjarðarlest og strætó. Svo fóum við í Sickla köpkvarter þar sem eru alls konar verslanir í fáeinna mínútna fjarlægð frá íbúðinni. Keyptum í matinn (ísskápurinn var tómur) og fórum svo fljótlega niður í bæ.

Skelltum okkur í Gamla stan þar sem við fengum okkur að borða. Elgssteik bæði tvö. Gengum svo þaðan upp eftir Drottninggatan þar til við komum á svæðið þar sem ég þekki mig til í grennd við Författnars Hus. Fengum okkur drykk þar áður en við héldum heim á leið. Tókum neðanjarðarlest til Slussen en þar sem hittist illa á varðandi strætó ákváðum við að taka leigubíl heim. Leigubílstjórinn var greinilega tyrkneskur, bæði í útliti og hvað varðaði hreim, en hann var samt harður á því að hann væri úr Dölunum þegar við spurðum hann hvaðan hann væri!!!

Þegar þessar línur eru ritaðar er orðið nokkuð áliðið. Ásta er að horfa á einhvern vestra (heyrist mér) og líklega förum við að halla okkur fljótlega.

Enn er hálfgerð rigning - ekkert úrhelli - en því miður er spáð meiri rigningu á næstunni.

Lifið heil!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home