Monday, October 23, 2006

Enn rignir'ann

Við Ásta fengum okkur góðan ríflega klukkutíma göngutúr á sunnudagsmorgni meðfram Sickla Strand. Þetta er nýtt og glæsilegt bryggjuhverfi í nokkurra mínútna fjarlægð frá íbúðinni. MJÖG skemmtilegt svæði. Það var dálítið þungbúið svo að fáar myndir voru teknar en Ásta er með myndavél með sér (ekki ég).

Eftir hádegi skelltum við okkur á Vasa safnið. Tókum ferju báðar leiðir. Það er óhætt að segja að við vorum hrifin af safninu. Safnið er byggt í kringum herskipið Vasa sem sökk árið 1628 í jómfrúrferð sinni, eftir 1300 metra siglingu! Þarna er hægt að fá upplýsingar um pólitíkina og styrjaldirnar í upphafi 17. aldar og þörfina fyrir herskip. Þarna er sagt frá byggingu skipsins sem tók rúm 2 ár og stöðugleikaprófinu sem það gekk í gegnum áður en það lagði af stað og hefði átt að verða til þess að það færi aldrei af stað. Þarna er líka sagt frá því þegar það fannst aftur á 6. áratugi síðustu aldar, hvernig því var náð af hafsbotni og hvernig unnið hefur verið að því að forverja það. Þarna var líka hægt að fræðast um lífið um borð, bæði fyrir almenna sjómenn og yfirmenn. Ef maður þreyttist á að ganga um gat maður sest í sýningarsali og horft á kvikmyndir um þetta allt.

Eftir safnferðina fórum við niður í bæ, settumst loks inn á krá og fengum okkur drykk meðan við biðum eftir að kominn væri tími til að borða og stytti upp. Fórum á ítalskan stað. Ég var heppinn með mat, ekki Ásta. Síðan heim í rólegheitunum.

Í dag, mánudag, var venjulegur vinnudagur hjá mér. Ásta fór í bæinn og kortlagði verslanirnar. Keypti ekki mikið (frekar en venjulega). Eina vatnshelda skó, regnhlíf og bók um Paul McCarney! Innst í hjarta sínu eru hún enn sami blanki námsmaðurinn. Hún var komin heim um 5-leytið og var ekki í stuði til að fara aftur niður í bæ svo að ég kom við á japönskum stað og keypti sushi fyrir okkur. Síðan í rólegheitunum heima.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home