Bloggið í gær hvarf!
Skrifaði eitthvað í gærkvöldi á bloggið en tókst ekki að koma því frá mér - einhver vandræði með "serverinn" gerði ég ráð fyrir. Hélt að ég hefði vistað það og ég gæti sent það í dag en svo finn ég það ekki.
Hvað með það. Dagurinn í gær var ósköp venjulegur. Sneri mér að því að skrifa greinina því að úrvinnslu er sama sem lokið. Ætla að vera kominn með þokkaleg drög að greininni í lok næstu viku og upphafsdrög að annarri grein enda er efnið sem ég er búinn að vera að "analýsa" raunverulega meira en nóg í tvær greinar sem þó tengjast mikið. Önnur er svona hálfgert framhald af hinni.
Ég hélt líka áfram að lesa bókina um Soay féð á eyjunni Hirtu út af Skotlandi sem síðan var efni umræðufundar í morgun með mér og doktorsnemunum þremur sem Anders er með. Anders hafði auðvitað ætlað að vera með en svo þurfti hann að vera við jarðarför í dag suður í Norrköping. Annars þýðir nafnið "Soay" Sauðey.
Bókin er 10 kaflar og við fórum í gegnum þá 2 fyrstu og ákváðum svo að nemendurnir þrír kynntu sér sérstaklega einn kafla hver sem þeir mundu fjalla um næsta föstudag, hvort sem við komumst yfir svo mikið eða ekki. Þeir eiga líka að kynna sér helstu greinar sem vitnað er til í köflunum og fjalla sérstaklega um fræðilega hlutann sem við kemur hverjum kafla en ekki er sagt svo mikið um í sjálfri bókinni.
Þetta var bara gaman í morgun, afslappað, og krakkarnir eru allir efnilegir. Peter er frekar stærðfræðilega þenkjandi og er aðallega í stofnvistfræði. Karin (en ég er núna meðleiðbeinandi hennar) er í stofnerfðafræði refa og notast við sameindalíffræðilegar aðferðir. Hún notar m.a. svokölluð örtungl (microsatellites) til þess að skoða stofnerfðafræðilegan breytileika á litlum skala (samanburður á refum (refastofnum) innan Skandinavíu). Hún mun einnig gera frekari samanburð á Skandinavíu og Íslandi og skoða breytileika milli svæða á Íslandi. Svo er það Veronika sem er líka í sameindalíffræðinni en hún hefur meðal annars verið að skoða DNA úr refum frá lokum Ísaldar en aðallega snýst verkefnið hennar um mismunandi gamla mammúta frá Wrangel eyju og hvernig erfðabreytileikinn minnkaði eftir að Wrangel varða að eyju þegar Ísaldarjökullinn bráðnaði og sjávarmál hækkaði. Þá einangraðist stofninn en tórði þó mun lengur þar en á meginlandinu. Þeir síðustu dóu út fyrir ca 4000 árum.
Nú eru miðannarfrí í grunnskólum í næstu viku og stefnir Anders á að vera með fjölskyldunni í sumarhúsinu í Tovetorp mestalla vikuna. Mér skilst á honum að aðallega þurfi Kerstin á því að halda að losna við streituna í vinnunni. Það táknar að líklega verð ég einn með krakkana líka næsta föstudag. Ég hefði kosið að Anders væri þar líka - alltaf skemmtilegra að fá fleiri sjónarhorn - en þetta verður samt allt í lagi.
Veður er fremur óstöðugt hér þessa dagana, oft rigning en sjaldan úrhelli. Í gær kólnaði niður í 5°C og átti að fara í 2°C í nótt. Mér fannst þó ekkert mjög kalt í morgun. Á morgun sýnist mér á veðurkortum að eigi að vera þurrt og við Ásta erum að hugsa um að bregða okkur til Sigtuna, gömlu höfuðborgarinnar, sem er ca 20 km norðan við Stokkhólm. Annað kvöld erum við svo boðin í mat til Anders og Kerstin.
Læt þetta duga í bili.
Lifið heil!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home