Sólskin á sunnudegi
Fallegt veður í dag, sólskin og fremur lygnt en kalt í dag.
Í gær var líka sólskin og kalt en hvasst sem gerði það að verkum að það var ansi hráslagalegt. Mikil drífa af laufum úr trjánum. Við Ásta höfðum hugsað okkur að fara og skoða Sigtuna, gömlu höfuðborgina, en hættum við. Við komumst nefnilega að því að það tæki okkur ca 2 tíma að koma okkur hvora leið með ýmsum strætisvögnum og lestum og þar sem við áttum að vera mætt til Anders og Kerstin kl. 17:30 fannst okkur ekki taka því að fara því að stoppið hefði orðið stutt.
Þess í stað fórum við og skoðuðum nýlistasafnið og arkitektúrsafnið á Skeppsholmen. Það fór ekki hjá því að við hugsuðum til Ragnhildar og Páls Ragnars sem heimsóttu þessi söfn örugglega fyrir tveim árum, þegar þau voru hér á haustmisseri.
Það stóð illa á strætisvögnum þegar við ætluðum heim (enda laugardagur) og því vorum við sein fyrir. Lögðum því ekki af stað til A & K fyrr en klukkan 17 og vorum nákvæmlega klukkutíma á leiðinni enda byrjuðum við í strætó, skiptum svo í Slussen yfir í neðanjarðarlest og svo yfir í ofanjarðarlest í Ropsten til Lidingö.
Ásta og Kerstin höfðu ekki sést í 20 ár, þegar Anders og hún voru á Íslandi! Þar urðu fagnaðarfundir. Ásta var alveg búin að gleyma hvernig Kerstin leit út og var að reyna að spyrja mig á leiðinni en mér lætur ekki vel að lýsa fólki. Til að byrja með var okkur boðið upp á þurrt sérrí og þurran Martini (að eigin vali). Anders sýndi Ástu allt húsið og greindi henni frá fyrirhuguðum breytingum, sem hann sagði mér frá síðast þegar ég var þarna. Okkur var svo boðið upp á elgskjöt og afskaplega góða villisveppasósu ásamt öðru meðlæti. Grískt, ítalskt og franskt rauðvín! Þetta gríska (norðurgríska) rauðvín kom satt að segja á óvart. Var bara verulega gott.
Mikið spjallað, aðallega um verkefni Kerstin sem eru mjög spennandi. Hún hefur meðal annars verið að skoða stökkbreytingu sem veitir vernd gegn eyðniveirunni. Þessi stökkbreyting finnst eingöngu í Evrópu og er algengust nyrst, þar sem um 20% fólks er með hana. Það merkilega er að Kerstin finnur hana líka í ca 2% fólks sem var uppi í Svíþjóð fyrir 4000 árum sem gæti bent til þess að einhver svipaður sjúkdómur hafi gengið fyrir ævalöngu í Norður-Evrópu.
Kvöldið leið hratt og við urðum að hálfhlaupa út úr dyrunum þegar klukkuna vantaði 5 mínútur í ellefu til að ná lestinni klukkan 23:03. Vorum komin inn úr dyrunum hérna heima kl. nákvæmlega 00.05 þrátt fyrir að bíða í korter eftir strætó við Slussen.
Eins og fyrr sagði var veðrið afar fallegt í dag. Við byrjuðum á að fara niður í verslunarhverfið hérna fyrir neðan þar sem við keyptum helstu nauðsynjar (brauð og avocado). Síðan fengum við okkur Sushi og fórum loks heim með "vörurnar". Eftir stuttan stans var farið í göngutúr hérna niður að vatninu (eða er það sjórinn, Eystrasalt?) og fengum okkur tveggja tíma göngutúr í stóran hring (eða frekar sporöskju). Síðan höfum við legið meira og minna í leti, horft á sjónvarp, lesið og fiktað í tölvum.
Ætlunin er að fara niður í bæ og borða úti síðasta kvöldið hennar Ástu því að hún heldur heim á leið á morgun.
Lifið heil!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home