Vetur
Enn snjóar hann. Þetta er svona róleg snjókoma, ekki mjög stór snjókorn en verulega blaut, enda er hitinn eitthvað fyrir ofan frostmark. Fékk mér langan göngutúr í dag, sömu leið og við Ásta fórum um daginn. Helmingurinner í gegnum skóg sem er látinn í friði og ekki hreinsaður þótt tré falli. Bifrarnir hafa haft nóg að gera því að þeir voru búnir að fella tré þvert yfir göngustíginn. Hvers vegna þeir fella svona stór tré (ca 25 cm í þvermál) veit ég ekki, því þeir hafa enga möguleika á að fjarlægja þau og bæta þeim í búið sitt. Ég hélt alltaf að bifrar gerðu stíflur þvert yfir ár en hér er um að ræða hleðslu sem stendur þvert út frá ströndinni út í vatnið, svona nokkra metra. Grindin er timbur en síðan hafa þeir þakið hana með mold og grasi o.s.frv. Engin op sjáanleg ofan vatnsyfirborðs.
Kom við hjá kaupmanninum á horninu á leiðinni til baka. Fékk mér avocado sem aldrei þessu vant var ekki tilbúið til átu strax í dag - verð að láta það bíða í einn eða tvo daga. Fékk mér líka einhvern skyndimat sem ég setti í ofninn áðan - þori ekki að reyna við örbylguofninn.
Fór í deildina í gær en krakkarnir báðu um frest að fara í bókina um Sauðeyjarféð. Lét það eftir þeim en velti því fyrir mér hvort Anders hefði gert það. Þeim fannst þau ekki vera nógu vel undirbúin og það er svo sem allt í lagi mín vegna að þau undirbúi sig betur. Þá læra þau kannski meira. Ætlum að taka hana fyrir á þriðjudaginn í staðinn. Ég hefði farið í deildina þótt ekki hefði staðið til að fara í bókina því að ég uppgötvaði að ég gat ekki (eðlilega) komist inn á hin ýmsu tímarit á netinu héðan úr íbúðinni heldur verð ég að gera það frá deildinni. Keypti mér sushi áheimleiðinni og át hér heima. Ég er greinilega ekki mjög duglegaru við að fara á veitingahús til að borða.
Fyrir utan það að halda áfram að skrifa greinina fór ég yfir og lauk við að gefa umsögn um umsókn til RannÍs. Ég hefði neitað að fara yfir þessa umsókn í ljósi þess hvernig RannÍs hefur farið með umsóknir mínar undanfarin 7 ár ef beiðnin hefði ekki komið frá Guðrúnu Ólafs, konunni hans Manga, frænda Ástu. En ég lét mig sem sé hafa það að fara yfir umsóknina gegn betri vitund og þótt tímakaupið sé lágt. Gaf góða umsögn enda var hún eftir bestu samvisku og ég var sjálfur ekki með nýja umsókn í fyrsta skipti í ca 15 ár.
Nú á að hlýna eitthvað á þriðjudaginn og ég tók eftir því að þá á að kólna heima. Dæmigert. Hlustaði á sjónvarpsfréttir í gegnum tölvuna áðan. Það tenfir sem sé í ofsaveður heima í nótt. Vona að fólkið mitt nái samt að sofa vært. Ásta mun vera búin að ganga frá öllu lauslegu svo að vonandi fer ekki allt til fjandans hjá okkur.
Lifið heil!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home