Wednesday, November 01, 2006

Stórhríð!

Þá er veturinn skollinn á. Hér er stórhríð, útihiti 0°C (ég var að uppgötva hitamæli utan við svefnherbergisgluggann minn). Anders er í fríi í sumarhúsinu sínu svo að ég ætla að spara mér ferðatímann í deildina og vinna heima. Nenni ekki út í þetta veður! Spáin segir reyndar að hitinn eigi að vera 0°C á daginn og -5°C á nóttunni næstu 2-3 daga en á sunnudaginn á hitinn að fara eitthvað smávegis upp fyrir frostmark.

Í fyrrakvöld, þegar ég var að festa blundinn, trúði ég ekki eigin eyrum þegar mér fannst moskítófluga vera að sveima við eyrað á mér. Ég bandaði þessari ímynduðu flugu frá mér en um það bil sem ég var að sofna aftur heyrði ég þetta á ný. Ég trúði því satt að segja ekki að það væri moskítófluga á sveimi miðað við útihitann. Eða hvað? Í nótt vaknaði ég við að ég var að klóra mér á upphandleggnum og fann fyrir nokkrum hnúðum þar. Og mikið rétt! Var með tvö myndarleg moskítóbit á handleggnum þegar birti af degi. After-bite og meira after-bite. Hvað er eiginlega með þessar flugur? Þær rífa sig upp úr vetrardvalanum bara til þess að leita mig uppi og fá sér fylli sína af þessu gæðablóði sem ég er (með).

Annars er ekkert að frétta - nema hvað hríðin heldur áfram og laufin þyrlast af trjánum í rokinu.

Lifið heil!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home