Flugnahöfðinginn
Vann heima í hríðarstormi í gær. Gekk vel og kom miklu í verk.
Rita, sem tekur til hérna einu sinni í viku, kom í gær. Hún hafði ætlað að hitta Ástu á mánudaginn en það gekk ekki upp (enda fór Asta af landi brott þann dag). Rita er mikill feministi og virk í kvennaframboðinu hérna í Svíþjóð þó ég sé ekki viss um að hún hafi sjálf verið í framboði. Hún hafði ætlað að leiða saman einhverja Zakiu og Ástu til að spyrja hina síðarnefndu út úr um feminisma á Íslandi! Rita og Zakia eru að vinna að því að stofna alþjóðleg feministasamttök. Ég hélt satt að segja að slík samtök hlytu að vera til en svo er líklega ekki. Seinna í mánuðinum er Rita að fara að heimsækja Evrópuþingið í Brussel í boði feminista á þinginu.
Rita kallaði á mig þegar hún var að taka til í svefnherberginu og benti mér á að innan á gluggarúðunni voru nokkrir tugir moskítóflugna! Ég hafði haft gluggann opinn alveg frá því að ég kom hingað en lokaði honum um morguninn vegna hríðarinnar. Hún sagðist hafa séð moskítóflugur þarna líka fyrir viku en þá hefði hún drepið þær allar. Hún sagðist bara ekki muna eftir að hafa séð svona nokkuð á þessum árstíma áður. Svo drap hún allar flugurnar og opnaði gluggann til að fá inn ferskt loft. En hvað haldið þið? Inn úr hríðinni flugu ca 10 moskótóflugur og settust á rúðuna innanverða! Þær voru ekkert rosalega hressar en þær voru þó fleygar. Og blóðið úr mér hefði örugglega hresst þær við.
Ég vissi að ég væri aðlaðandi fyrir moskítóflugur en mig hefði aldrei grunað að þær vöknuðu úr dvala í frosti og stórhríð bara vegna þess að ég væri í grenndinni!
Í dag, fimmtudag, er fallegt veður, sólskin og snjór yfir öllu, dálítil gola. Ég ætla að vinna heima í dag enda spara ég þá ferðatíma (tæpar 2 klst alls) og á þessu stigi get ég gert allt heima sem ég þarf að gera. Anders er í fríi en á morgun þarf ég að fara í deildina því þá held ég áfram að fara yfir bókina um Sauðeyjarféð með nemendunum.
Lifið heil!

0 Comments:
Post a Comment
<< Home