Tuesday, November 07, 2006

Vorveður

Bloggaði ekkert í gær enda var ég bara heima að vinna og gerði ekkert merkilegt. Í dag var vorveður, 10-12°C og lygnt, jafnvel dálítið sólskin með köflum. Vorum með tveggja tíma fund um Sauðeyjarféð í morgun. Anders mætti svo að við vorum fimm. Bara gaman.

Nú er ég eiginlega búinn með (fyrri) greinina en það er ótrúlega mikið verk að ganga frá öllum lausu endunum og setja greinina í það format sem viðkomandi tímarit vill fá hana. Ég byrjaði á útdrættinum í gær og hélt að ég væri langt kominn með hann þegar ég hætti. Hélt áfram með hann eftir hádegi í dag og það fór nánast allur dagurinn í þetta (að meðtöldum tímanum sem fór í að breyta inngangi og umræðukafla þegar ég var svona að ákveða hverjir væru mikilvægustu þættirnir í greininni). Á morgun mun ég fara aftur í inngang og umræðukafla og reyna að skerpa á mikilvægustu atriðunum og stilla þeim hvorum á móti öðrum - draga fram samhengið.

Er með CNN í gangi. Allt snýst um kosningarnar í bandaríkjunum. Vona bara að Buskur fái þann rassskell sem hann á skilinn.

Lifið heil!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home