Sádámi dæmdur
Jæja, þá er búið að dæma Saddam Hussein til dauða. Ekki óvænt, svo sem. Hef horft á dómsuppkvaðninguna ca 20 sinnum í dag þar sem ég er með CNN í gangi jafnframt því sem ég er að vinna við borðstofuborðið í íbúðinni. Hef verið að bæta við ýmsum fylgniútreikningum (correlation) á veðurfarsþáttum annars vegar og stofnþáttum hins vegar sem ég hugsa að ritstjórar viðkomandi vísindarits mundu hvort sem er krefjast. Ekkert óvænt kom í ljós. En tímafrekt var það!
Héðan er sem sagt ekkert að frétta. Hef setið við í allan dag og unnið með CNN í gangi. Hinar rásirnar eru jafnvel enn þá leiðinlegri.
Skrapp aðeins niður í Sickla köpkvarter í eftirmiddaginn og keypti helstu nauðsynjar. Hafði verið farinn að hlakka til að fá mér avocado en aldrei þessu vant var það ekki tilbúið til neyslu strax. Eins og trúfastir lesendur eru eflaust farnir að átta sig á er avocado í miklu uppáhaldi hjá mér um þessar mundir!
Ég ætlaði í göngutúr í dag en þegar ég mundi eftir því var klukkan að verða 8 að kveldi og mér fannst ekki taka því að gera það. Best að halda bara áfram að vinna. Frekar tilbreytinarlaust líf en á hinn bóginn hef ég afkastað töluverðu og til þess er ég hérna!
Fer í deildina á morgun enda þarf ég að hafa rafrænan aðgang að tímaritum. Ýmsar greinar sem ég þarf að líta á.
Vona að óveðrið heima sé liðið hjá og öllum líði vel.
Lifið heil.

0 Comments:
Post a Comment
<< Home