Wednesday, November 29, 2006

Stutt í heimferð

Þetta verður sem sé síðasta bloggið héðan frá Svíþjóð.

Fór út á krá í gærkvöldi með Anders og Gunnari. Hvorki Kerstin né Peter komust. Kerstin var að leika handbolta og Peter inni-bandí. Þetta keppnisíþróttafólk er alltaf til vandræða!

Fengum okkur steik og franskar á kránni, fyrir utan auðvitað Guinness og fleira. Áttum, held ég, ágæta stund saman og gott að Gunnar kynnist Anders. Við borðuðum líka saman í hádeginu í dag ásamt Peter. Peter er fuglamaður eins og Gunnar þótt hann sé ekki jafnheltekinn af söfnunaráráttu. En mér skilst að þeir ætli saman í fuglaskoðun einhvern tíma á næstunni. Gunnar var vitaskuld með óskalista yfir fugla sem hann vill sjá meðan hann er hérna.

Mér varð ekki mjög mikið úr verki í dag. Hugurinn var lagður af stað heim og ég fór snemma úr deildinni. Var kominn í íbúðina klukkan hálfsex. Setti grænmetis lasagna í ofninn og fór að pakka. Það tók svo sem ekki langan tíma enda þurfti lítið að velta því fyrir sér hverju ætti að pakka og hverju ekki. Taskan er allvel troðin enda hafa bæst við tvær bækur og tvær skyrtur. Mig minnir að ég hafi hent einu götóttu sokkapari (Ásta neitar að stoppa í sokka) fyrir nokkrum vikum og svo tók Inga heim með sér gönguskóna og sandalana mína. Þetta verður því ósköp svipað og þegar ég kom.

Enn er milt veður. Reyndar mjög gott veður. Rakt en ekki rigning, 6-7°C. Mér sýndist þó á veðurkortinu í sjónvarpinu áðan að það gæti rignt á morgun. En ég finn nú ekki fyrir því nema rétt á meðan ég bíð eftir strætó í fyrramálið. Ætla að taka vagninn kl. 9:56 til Slussen, svo neðanjarðarlest til T-Centralen og loks flugrútuna til Arlanda. Miða við að verða kominn þangað kl. 11:20, tveim tímum fyrir brottför.

Læt þetta nægja í bili. Næsta blogg verður frá Guatemala í lok mars 2007!!!

Lifið heil!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home