Tuesday, November 21, 2006

Draumórar og martraðir

Það hefur ekkert merkilegt gerst síðan ég skrifaði síðast á laugardaginn. Ég var heima að vinna á sunnudaginn en fékk mér þó góðan göngutúr í nágrenninu seinnipartinn.

Í gær, mánudag, var kennslufundur um sauðeyjarféð. Ágætt eins og fyrri daginn. Í dag var bara venjulegur vinnudagur í deildinni. Er enn að reyna að bæta fyrri greinina og vona að ég sé nú að verða búinn með hana. Ætla að reyna að taka dálítinn skurk í þeirri seinni áður en ég fer heim.

Á föstudaginn verður fundur í SEFALO+ verkefninu (þar sem ég er formlega ráðgjafi verkefnisins). Honum á að ljúka um kl. 14 eftir hádegi en síðastir á dagskrá eru nokkrir fyrirlestrar. Nina Eide hin norska á að halda fyrirlestur meðal annarra en hugsanlegt er að hún gangi úr skaftinu og er Anders búinn að biðja mig um að hlaupa í skarðið ef svo fer. Ég samþykkti það en það kemur væntanlega í ljós á morgun. Ég mun byggja á fyrirlestrinum sem ég hélt á fimmtudaginn í Tovetorp en þarf að stytta hann verulega því að ég hef korter núna en klukkutíma síðast!

Annars kemur Nina Eide hingað á fimmtudaginn og við munum hafa smáfund ásamt Anders. Ég er líka búinn að bóka fund með Bodil Elmhagen, fyrrum nemanda Anders, þennan dag. Á fimmtudagsköld eiga allir að vera komnir sem verða á föstudagsfundinum og þá verður farið út að borða.

Mig dreymdi skrítinn draum í nótt. Ákvað að reyna að muna hann því að venjuleg gleymi ég öllum draumum jafnóðum. Mér fannst ég vera að keyra bíl og ákvað af einhverri ástæðu að taka 180° beygju á malbikuðum vegi. En þá kemur í ljós að það er hálka á veginum. Bíllinn nær að vísu að snúast 180° og fara yfir á hinn vegarhelminginn en rennur áfram út á hlið inn í smáútskot þar sem er einhvers konar glingurverslun. Þar skellur bíllinn utan í litla styttu sem stendur fyrir utan verslunina. Þetta var einhvers konar Búddalíkneski nema hvað Búdda stóð uppréttur og var ekki feitur með krosslagaðar lappir eins og er svo algengt. Styttan skemmdist, það brotnaði lítillega út úr höfðinu á henni, við munninn. Út úr versluninni kemur ungur maður og ég útskýri fyrir honum hvað hafi gerst og býðst til að kaupa styttuna. Jú, það var allt í lagi. Þúsund kall, sagði hann. Mér fannst það eitthvað dýrt en hugsaði með mér að það borgaði sig ekki að vera að rífaast yfir þessu. Ég var auðvitað að flýta mér eins og venjulega.

Í því bili kemur verslunareigandinn út. Það var enginn annar en Árni Johnsen! Hann segir að ég verði endilega að fá jólaseríu í kaupbæti. Mér fannst það bara hið besta mál. Hann lét þá taka saman einhvera risastóra jólaseríu og pakka henni inn. Hún var svo stór að ég var ekki viss um að koma henni inn í bílinn.

“Þetta verða þá fimm milljónir,” segir Árni.

“Fimm milljónir?” segi ég.

“Á mánuði,” segir Árni.

“Á mánuði?”

“Já, heldurðu að það sé ekki kostnaður við að senda menn mánaðarlega til að kveikja á seríunni?” segir Árni.

Ég fór eitthvað að malda í móinn en þá hallar Árni sér í öllu sínu veldi yfir mig, þefar ógurlega og segir: “Heldurðu að ég viti ekki að þú varst að keyra fullur? Þú kemst ekkert upp með að brjóta hér styttur fyrir mér ef þú vilt ekki ganga til samninga við mig! Þá er það bara löggan og Kvíabryggja, góði minn!”

Við þetta vaknaði ég og hvernig sem ég reyndi, tókst mér ekki að sofna aftur til að svara Árna Johnsen fullum hálsi eins og ég hefði þó viljað gera.

Hér eru því tvær spurningar:

1) Hvað táknar þessi draumur?
2) Hverju hefði ég átt að svara Árna?

Lifið heil!

2 Comments:

Blogger PH said...

Þú (með aðstoð Tóta) átt greinilega framtíð fyrir þér í draumráðningum! Nú er bara að agitera fyrir því að ÁJ verði umhverfisráðherra.

1:05 AM  
Blogger Palli said...

Hann yrði ekki fyrsti vitleysingurinn í því embætti. Fyndinn draumur, og góð ráðning!

12:59 PM  

Post a Comment

<< Home