Wednesday, April 16, 2008

Enn er sól í Barcelona

Miðvikudagur 16. apríl 2008

Enn einn sólríkur dagur í Barcelóna, þrátt fyrir spár um annað. Og enn spá þeir skúrum á morgun og hinn. Sjáum til með það.

Í morgun fórum við í rúmlega tveggja tíma ferð í opnum tveggja hæða strætisvagni um borgina til að sjá helstu mannvirki sem máli skipta. Ég verð að segja að La familia sagrada kirkjan kom á óvart. Hún er búin að vera í byggingu í meira en hundrað ár og enn eru einhverjir áratugir þangað til byggingu lýkur en hún er og hefur frá upphafi verið kostuð af nafnlausum peningagjöfum og byggingarhraði fer eftir því. Byggingarframkvæmdir voru í fullum gangi og nokkrir risakranar í gangi. En það sem kom kannski mest á óvart var að heyra að langstærsti turninn er enn ekki risinn. Eru þó hinir turnarnir allstórir. Og hönnuðurinn, Antoni Gaudí, dó árið 1926!

Þegar við komum til baka niður í bæ fengum við okkur tapas og gengum svo út í Parc de la Ciutadella. Á kortinu virðist þetta vera nokkuð stór garður en hann er það ekki í reynd. Ósköp notalegur þó, með litlar tjarnir þar sem endur með ungum svömluðu, og í góða veðrinu var margt fólk á öllum aldri í sólbaði, samræðum eða í keleríi. Skoðuðum líka Arc de Triomf, sigurbogann þeirra, sem er við endann á garðinum. Settumst á bekk og nutum umhverfisins.

Röltum svo upp á hótel á ný til að fá okkur dálitla síestu. Það verður að segjast eins og er að yðar einlægur var feginn að leggjast út af og hvíla allar blöðrurnar á löppunum þótt strigaskórnir hafi reyndar farið tiltölulega vel með þær.

Eftir endurnærandi hvíld fórum við út í mannþröngina á ný og í þetta sinn var byrjað í stórmarkaðnum El Corte Inglés. Þar birgðum við okkur upp af nærfötum til að fleyta okkur yfir síðustu dagana í ferðinni til að sleppa við að fara í stórþvott áður en við förum. Höfðum reyndar stundað “smáþvott” í Cadaqués og hengt nærurnar á stóla úti á svölum til þerris í þeirri von að koma ekki illu orði á hótelið. En hér er ekki beinlínis aðstaða til þess því að sólin skín ekki á svalirnar okkar (ef svalir skyldi kalla) nema afar stutt yfir miðjan daginn, þar sem göturnar eru svo þröngar. En þarf maður annars nokkra afsökun fyrir því að kaupa sér nærföt á Spáni á hálfvirði miðað við heimalandið? Og til þess að sýna hve forhert við erum má bæta því við að Ásta keypti sér líka sokka og ég skyrtu!!! Þar hafið þið það og hananú!

Eftir þessi miklu innkaup röltum við um stund um bæinn uns við fundum stað til að snæða kvöldverð. Fengum okkur forrétt og aðalrétt eins og gengur. En þegar reikningurinn birtist í lok kvöldsins kom í ljós að gleymst hafði að rukka fyrir annan aðalréttinn. Ég kallaði á yfirþjóninn (eigandann, held ég, en hann var einmitt að ganga fram hjá þegar ég uppgötvaði þetta) og taldi mig hafa bent á hver mistökin væru, en eitthvað hefur víst farið úrskeiðis á því stigi. Þjónustustúlkan, sem hafði tekið við pöntuninni, kom svo og fór í gegnum reikninginn með mér. Höfðum við ekki pantað þessa tvo forrétti? Jú, það var rétt. Hafði ég ekki pantað þennan aðalrétt? Jú, það var rétt, en Ásta hafði líka fengið sama aðalrétt og það vantaði á reikninginn, benti ég á. Við þetta fór aumingja stúlkan alveg í kerfi því að þetta var greinilega óvænt – hún hafði haldið að við værum að kvarta yfir að hún væri að rukka okkur fyrir of mikið. Hún hvarf í miklu flaustri og við heyrðum að hún var að afsaka sig mikið við eigandann. Kom svo aftur með réttan reikning og ég borgaði. En áður en við vissum af var eigandinn komin með tvö staup á borðið ásamt flösku af Crema Catalan (líkjör sem er mjög svipaður og Irish Cream) og flösku af Kutty Sark viskíi, hellti í glösin og skildi flöskurnar eftir á borðinu. Öðru hverju kom hann eins og hvítur stormsveipur og bætti í staupin. Við hefðum getað klárað úr flöskunum ef við hefðum viljað, það var augljóst! Sennilega er ekki algengt að viðskiptavinir láti vita þegar þeir eru rukkaðir um of lítið.

Gengum síðan heim í rólegheitunum. Veðrið enn þá mjög gott og margt fólk á ferli.

Á þessu stigi reyni ég ekki að koma myndum á netið – það er fyrirfram vonlaust.

Lifið heil!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home