Monday, April 06, 2009

Sidasti dagurinn i Costa Rica

Er a tolvu hotelsins her i San Jose og thvi engir islenskir stafir.

Thegar vid komum hingad til San Jose i gaer keyptum vid braud og ost og skinku, raudvin og djus, og satum uti vid sundlaugina asamt Anne og Scott. Svo var siesta en svo hittumst vid 4 asamt Todd og Bonnie og fengum okkur drykk. Vid forum svo 4 ut ad borda. Todd, Bonnie, Ann og Scott flugu svo til Bandarikjanna i morgun.

I morgun forum vid Asta nidur i bae og aetludum i jade safnid en thad var lokad thvi ad nu er "Semana Santa", thad er dymbilvika. Flest svona menningartengt lokad, fri i skolum og svoleidis. Skruppum a markad i stadinn. Asta var med litinn bakpoka og hann var opnadur a tveim stodum an thess ad vid taekjum eftir en engu var stolid thvi ad thar var engu ad stela. Hun var reyndar med vegabrefin okkar i pokanum en their voru i leyniholfi sem vonlaust var fyrir thjofana ad finna vid thessar adstaedur.

Komum aftur upp a hotel kl 15 og eg reyndi ad komast a netid. Thad hafdi gengid vel i gaer. Nu gekk thad ekki. Eg hringdi thvi i lobbyid og their sogdust mundu senda mann ad kikja a malid. Beid og beid. Hringdi aftur eftir halftima. Tha kom i ljos ad madurinn var annars stadar en kaemi fljotlega. Svo komu tveir menn. Thad var hreinn brandari ad fylgjast med theim. Their nalgudust tolvuna eins og hun vaeri villidyr sem haettulegt vaeri ad snerta. Algjor brandari. Their vissu greinilega ekkert i sinn haus en af thvi ad sambandid var ekki fullkomid voru their vissir um ad thad vaeri vandamalid. Foru badir og komu ad vormu spori aftur med kapal og modem til ad tengja vid tolvuna. Settu allt a haus i herberginu til ad finna innstungu. Eg vissi ad thetta var ekki vandamalid en sagdi ekkert. Thetta gekk audvitad ekki. Tha sogdu their ad their gaetu hringt i "help desk" og thar vaeri manneskja sem gaeti hjalpad. Their gerdu thad, settu mig i samband vid konuna og foru svo. Loksins hitti eg a manneskjuna sem eg atti audvitad ad fa samband vid strax i upphafi. Hun byrjadi ad fara med mig i gegnum stillingarnar en thad gekk haegt thvi ad mer gekk illa ad skilja hana i gegnum simann. Svo slitnadi sambandid og thar sem eg hafdi ekki hringt i hana upphaflega, heldur rafvirkjarnir, vissi eg ekki hvert aetti ad hringja. Beid thvi um stund en hun hringd ekki til baka. Gafst upp eftir 10 minutur. Tha var thessi vitleysa buin ad standa i naestum tvo og halfan tima! Thess vegna er eg her i lobbyinu ad hripa thessar linur.

Velin okkar fer i loftid kl 8 i fyrramalid. Fljugum til Atlanta, thadan til Boston og svo loks beinustu leid heim. Lendum ad morgni midvikudags.

Lifid heil!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home