Meira frà Drake Bay
Miðvikudagur 1. apríl 2009
Þetta verður stutt núna því að eftir um 40 mínútur leggjum við af stað í gönguferð út í skóginn þar sem við munum gista í nótt í tjaldi. Það er reyndar ekki nema rúmlega hálftíma gönguferð að tjaldsvæðinu. Á morgun munum við svo fara í lengri gönguferð um frumskóginn en koma aftur hingað í húsið „okkar“ síðdegis.
Í gærkvöldi tókum við því rólega. Jan (nú er ég búinn að spyrja hvernig nafnið hennar er stafað; það er sem sé hvorki Jen né Gen; ameríski framburðurinn ruglaði mig) eldaði dýrindis fiskisúpu úr fiskum sem Richard og Todd höfðu veitt í vikunni. Þeir eru miklir áhugamenn um sjóstangveiði. Um kvöldið fengum við svo að heyra undan og ofan af fjölskyldusögu Jan, aðallega sögur af föður hennar. Það er stórmerkileg saga sem því miður verður ekki tími til að segja frá hér.
Í morgun lögðum við af stað í bátsferð kl. 7:30 til Caňo eyjar, sem var notuð í upphafsatriði Júragarðsins, þeir sem muna eftir henni. Í myndinni var flogið á þyrlu til þessarar eyjar. Við fórum sem sé á báti þangað. Þetta eru ca 14 km leið. Á leiðinni var reynt að veiða í soðið án árangurs. Þó sáum við túnfisk stökkva. Einnig sáum við flugfiska og höfrungahópa bæði á leiðinni til og frá eyjunni. Á þessu svæði fara 25 tegundir hvala og meðal höfrunga framhjá árlega eða eru hér allt árið. Einnig freigátufugla sem lítið þurfa að hafa fyrir fluginu. Skammt frá ströndinni var stansað og þeir sem vildu snorkluðu í sjónum í ca klukkutíma. Þá var farið í land þar sem nestið var dregið fram, sumir fóru í gönguferð upp á fjall en aðrir fóru að snorkla í fjörunni. Sjórinn var ótrúlega tær og í kringum kóralana var mikið af skrautklegum fiskum af ýmsum stærðum og gerðum. Hvorugt okkar hafði snorklað áður en það gekk bara vel. Vorum svo komin til baka um tvöleytið og þá fengum við okkur afganga frá kvöldinu áður. Nú eru allir sem sé að undirbúa sig fyrir ferðina á eftir. Meiningin er að reyna að senda þetta á Netkaffinu sem við förum fram hjá áður en við höldum út í skóginn.
Lifið heil!

3 Comments:
vá spennandi - góða skemmtun og passið ykkur á flugunum
kv
Ester
Til hamingju með afmælið, mamma!
Skemmtið ykkur vel og passið ykkur á risaeðlunum.
Allt gott að frétta héðan.
Kveðja,
Hersteinn
Virkilega gaman að lesa bloggið!
Til hamingju með afmælið Ásta
Bkv, Ásbjörg
Post a Comment
<< Home